Skattframtal 2022 vegna launa 2021

Fréttir|1. mars 2022

Hér eru tilgreind ýmis praktísk atriði varðandi skattframtal 2022 vegna launa ársins 2021.

Ábendingar vegna greiðslna úr endurmenntunarsjóðum KÍ:


Vísindasjóður Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla
Vonarsjóður FG&SÍ Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands
Starfsmenntunarsjóður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum
Vísindasjóður Félags framhaldsskólakennara og stjórnenda í framhaldsskólum

Launamiðar eru ekki sendir út til félagsmanna KÍ. Fjárhæðin á launamiðanum v/greiðslna frá sjóðum KÍ er forskráð á tekjusíðu skattframtals 2022 (vegna 2021) undir lið 2.3. við línu „Styrkir til náms, rannsókna og vísindastarfa (heildarfjárhæð)“ í reit 131. (Sjá nánar á sundurliðunarblaði sem fylgir framtali yfir allar forskráðar greiðslur).
ATHYGLI er vakin á því að fjárhæðir sem færa má til frádráttar skal skrá undir lið 2.6 „Frádráttur“ í reit 149. Þær upphæðir eru EKKI forskráðar.

Sjá nánar í leiðbeiningarbækling RSK fyrir einstaklinga á www.skatturinn.is


Heimilt er að draga frá kostnað á móti endurmenntunarstyrk. Er því skráður útlagður kostnaður (t.d. námskeiðskostnaður) á móti styrkupphæð undir lið 2.6 „Frádráttur“ í línu „Frádráttur á móti náms-, rannsóknar- og vísindastyrkjum“ í reit 149. Þegar smellt er í „Færa frádrátt“ opnast yfirlit þar sem félagsmenn geta gert grein fyrir kostnaði á móti styrk.

Að öðru leyti er framteljendum bent á leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals einstaklinga.

 

Styrkir úr sjúkrasjóði KÍ:

Allir styrkir sjúkrasjóðs, nema dánarbætur KÍ, teljast skatt- og staðgreiðsluskyldar tekjur. Félagsmenn hafa nú þegar greitt skatt af þessum styrkjum. Ekki eru sendir út launamiðar til félagsmanna. Fjárhæðin á launamiðanum er forskráð á tekjusíðu skattframtals 2022 (v. 2021) undir lið 2.3 „Annað, hvað?“ í reit 96 og á þetta við um sjúkradagpeninga og aðra styrki sjúkrasjóðs.

Dánarbætur færast undir lið 2.9 „Skattfrjálsar tekjur“ C í reit 73 á framtalinu. (Sjá nánar á sundurliðunarblaði sem fylgir framtali yfir allar forskráðar greiðslur).

Afdregin staðgreiðsla af sjúkradagpeningum og öðrum styrkjum sjúkrasjóðs er forskráð á skattframtalið undir lið 2.10 „Staðgreiðsla af tekjum (öðrum en fjármagnstekjum“) í reit 296.


Styrkir úr sjúkrasjóði KÍ – Frádráttarbært samkvæmt skattamati RSK

Vert er að benda á leiðbeiningar frá Ríkisskattstjóra vegna frádráttarheimildar á styrkjum vegna Heilsuræktar. Sjá hér.