Skattframtal 2016 vegna launa 2015
Fyrir neðan eru ábendingar vegna greiðslna úr eftirtöldum endurmenntunarsjóðum KÍ:
- Vísindasjóður Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla
- Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands - Vonarsjóður
- Starfsmenntunarsjóður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum
Launamiðar eru ekki sendir út til félagsmanna í almennum pósti heldur eru þeir eingöngu aðgengilegir í rafrænum skjölum í heimabanka. Fjárhæðin á launamiðanum er forskráð með vélrænum hætti á tekjusíðu skattframtals 2016 (vegna 2015) í reit 2.3 (131). Með framtalinu fylgir sundurliðunarblað yfir allar forskráðar greiðslur.
Athugið að fjárhæðir sem færa má til frádráttar í reit 2.6 (149) eru EKKI forskráðar. Þar sem ofantaldir styrkir eru ekki skattsskyldir þarf að færa styrkhupphæðina í reit 2.6 (149) til frádráttar.
Útlagður kostnaður á móti styrkupphæð færist í reit 2.6 (149) og þar er beðið um greinagerð um frádráttinn. Greinargerðina má útbúa í „Færa frádrátt“ í reit 2.6 (149). Í greinargerðinni má geta þess að gögn um ofangreindan útlagðan kostnað liggi fyrir á skrifstofu Kennarasambands Íslands.
Að öðru leyti er framteljendum bent á leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals einstaklinga.
Ábendingar vegna styrkja úr sjúkrasjóði KÍ:
Allir styrkir sjúkrasjóðs, nema dánarbætur, teljast skatt- og staðgreiðsluskyldar tekjur. Búið er að halda eftir staðgreiðslu af þessum styrkjum. Ekki eru sendir út launamiðar til félagsmanna í almennum pósti heldur eru þeir eingöngu aðgengilegir í rafrænum skjölum í heimabanka. Fjárhæðin á launamiðanum er forskráð með vélrænum hætti á tekjusíðu skattframtals 2016 (vegna 2015) í reit 2.3 undir „annað, hvað?“ og á þetta við um sjúkradagpeninga og aðra styrki sjúkrasjóðs.
Dánarbætur færast í reit 2.9 C (73) á framtalinu, skattfrjálsar tekjur. Með framtalinu fylgir sundurliðunarblað yfir allar forskráðar greiðslur.
Afdregin staðgreiðsla af sjúkradagpeningum og öðrum styrkjum sjúkrasjóðs færist vélrænt á framtalið í reit 2.10 (296).
Að öðru leyti er framteljendum bent á leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals einstaklinga.
Kær kveðja frá KÍ
Ásta St. Eiríksdóttir, gjaldkeri sjóða KÍ.