Skattframtal 2015 vegna launa 2014
Ábendingar vegna greiðslna úr endurmenntunarsjóðum KÍ
Vísindasjóður Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla
Verkefna og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands - Vonarsjóður
Launamiðar eru ekki sendir út til félagsmanna í almennum pósti, eingöngu í tölvupósti. Fjárhæðin á launamiðanum verður forskráð með vélrænum hætti á tekjusíðu skattframtals 2014 í reit 2.3 (131). (Með framtalinu fylgir sundurliðunarblað yfir allar forskráðar greiðslur).
Athygli er vakin á því að fjárhæðir sem færa má til frádráttar í reit 2.6 (149) eru EKKI forskráðar. Þar sem ofantaldir styrkir eru ekki skattskyldir færir þú styrkupphæðina í reit 2.6 (149) til frádráttar.
Útlagður kostnaður á móti styrkupphæð færist í reit 2.6 (149) og þar er beðið um greinagerð um frádráttinn sem útbúa má í „ Færa frádrátt“ í reit 2.6 (149).
Í greinagerðinni má geta þess að gögn um ofangreindan útlagðan kostnað liggi fyrir á skrifstofu Kennarasambands Íslands. Að öðru leyti er framteljendum bent á leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals einstaklinga.
Ábendingar vegna greiðslna úr Sjúkrasjóði KÍ
Allir styrkir Sjúkrasjóðs, nema dánarbætur KÍ, teljast skatt- og staðgreiðsluskyldar tekjur. Félagsmenn hafa nú þegar greitt skatt af þessum styrkjum. Ekki eru sendir út launamiðar til félagsmanna í almennum pósti, eingöngu í tölvupósti. Fjárhæðin á launamiðanum verður forskráð með vélrænum hætti á tekjusíðu skattframtals 2014 í reit 2.3 undir „Annað, hvað?“ og á þetta við um sjúkradagpeninga og aðra styrki sjúkrasjóðs.
Dánarbætur færast í reit 2.9 C (73) á framtalinu, skattfrjálsar tekjur. (Með framtalinu fylgir sundurliðunarblað yfir allar forskráðar greiðslur).
Afdregin staðgreiðsla af sjúkradagpeningum og öðrum styrkjum sjúkrasjóðs færist vélrænt á framtalið í reit 2.10 (296).
Að öðru leyti er framteljendum bent á leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals einstaklinga.
Ábendingar vegna greiðslna úr Vinnudeilusjóði KÍ
Allir styrkir Vinnudeilusjóðs, teljast skatt- og staðgreiðsluskyldar tekjur. Félagsmenn hafa nú þegar greitt skatt af þessum styrkjum. Ekki eru sendir út launamiðar til félagsmanna í almennum pósti, eingöngu í tölvupósti. Fjárhæðin á launamiðanum verður forskráð með vélrænum hætti á tekjusíðu skattframtals 2014 í reit 2.3 undir „Annað, hvað?“.
Afdregin staðgreiðsla af vinnudeilusjóði færist vélrænt á framtalið í reit 2.10 (296).
Að öðru leyti er framteljendum bent á leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals einstaklinga.
Kær kveðja frá KÍ
Ásta gjaldkeri sjóða.