Skapandi leikskólastarf í Ungbarnaleikskólanum Bríetartúni

Fréttir|23. janúar 2024
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Fimmtudaginn 22. febrúar nk. kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í Ungbarnaleikskólanum við Bríetartún, Bríetartún 11,105 Reykjavík í boði Faghóps um skapandi leikskólastarf. Leikskólinn var formlega opnaður 1. apríl 2022 og svo bættust tvær deildir við í Ungbarnaleikskólanum við Hallgerðargötu í desember 2023. Í Bríetartúni eru fjórar deildir með 60 börnum. Anna Blöndal leikskólastjóri og hennar fólk tekur vel á móti okkur og kynnir starfsemi leikskólans, en við höfum fundið fyrir vaxandi áhuga á að fá kynnast starfi með ungum börnum. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.

Fimmtudaginn 22. febrúar nk. kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í Ungbarnaleikskólanum við Bríetartún, Bríetartún 11,
105 Reykjavík í boði Faghóps um skapandi leikskólastarf. Leikskólinn var formlega opnaður 1. apríl 2022 og svo bættust tvær deildir við í Ungbarnaleikskólanum við Hallgerðargötu í desember 2023. Í Bríetartúni eru fjórar deildir með 60 börnum. Anna Blöndal leikskólastjóri og hennar fólk tekur vel á móti okkur og kynnir starfsemi leikskólans, en við höfum fundið fyrir vaxandi áhuga á að fá kynnast starfi með ungum börnum. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.

Í ungbarnaleikskólanum Bríetartúni og í Hallgerðargötu er sérstök rækt lögð við umönnun, góð samskipti og málþroska og er málörvun rauður þráður í gegnum allt það starf sem fram fer í leikskólanum. Hugmyndafræði skapandi starfs og könnunarleikur eru í fyrirrúmi ásamt tónlist, hreyfingu, söng, líkamlegri örvun og útiveru. Unnið er með málörvunarefni, þar sem áhersla er á sjónrænt skipulag með samtali.

Alveg frá upphafi hefur leikskólinn tekið þátt í þróunarverkefninu „Réttindi barna á Íslandi“ sem er samstarfsverkefni 5 leikskóla, Unicef og Háskóla Íslands ásamt Kristínu Hildi Ólafsdóttur leikskólaráðgjafa á skrifstofu SFS. Verkefnið er til þriggja ára og á fyrsta starfsári leikskólann var megin
áherslan á að kynna barnasáttmálann fyrir starfsfólki leikskólans. Það gaf starfsfólki mikið og var hvatning til starfsfólksins að rýna starfið með Barnasáttmálann til hliðsjónar. Það var einnig ómetanlegt að vinna með öllu þessu fólki sem að verkefninu kemur. Leikskólinn vinnur með hvíld og rétt barns til hvíldar. Sett var hvíldarstefna með það markmið að vinna út frá Barnasáttmálanum.