Skapandi leikskólastarf í Lyngheimum

Leikskólinn hefur á að skipa 13 leikskólakennurum, auk fólks með aðra fagmenntun og leiðbeinendur með reynslu og þekkingu á leikskólastarfi.
Það var fjölmenni sem heimsótti leikskólann Lyngheima síðdegis þriðjudaginn 28. janúar. Kristín Helgadóttir leikskólastjóri flutti erindi og sagði gestum frá dásamlegu starfi sem á sér stað alla daga í Lyngheimum. Leikskólinn hefur á að skipa 13 leikskólakennurum, auk fólks með aðra fagmenntun og leiðbeinendur með reynslu og þekkingu á leikskólastarfi. Kristín sagði okkur frá því að fyrir nokkrum árum hefði fyrirkomulagi verið breytt á þann veg að deildarstjórar fara út af deild kl. 14-16 og sinna undirbúningi, fundarhaldi og slíkum þáttum. Það hefur gefist mjög vel, enda mátti sjá það víða í leikskólanum að kennarar hafa góðan tíma til þess að sinna skráningum og frágangi listaverka barnanna. Leikskólakennarar sem ekki eru með deildarstjórn eru með undirbúning að morgni dags og eru því til taks seinnipartinn, auk leiðbeinenda. Unnið er í leikskólanum eftir Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Að sögn Kristínar hefur gengið mjög vel að innleiða stefnuna. Leikskólinn er að máta eigin stefnu við nýju stefnuna, en auk þess er leikskólinn í samvinnu við aðra leikskóla í Grafarvogi að vinna að sameiginlegum verkefnum er tengjast Menntastefnunni.
Í leikskólanum dvelja 72 börn dag hvern og frá áramótum er ein deildin ungbarnadeild. Á næstunni á að taka deildina í gegn og aðlaga hana að yngstu börnunum og næsta sumar á að breyta útisvæðinu þannig að yngstu börnin geti verið á afgirtu leiksvæði. Undanfarin ár hafa átt sér stað miklar breytingar innanhúss, starfsfólk fór vel yfir það á hvern hátt mætti bæta starfsumhverfi þeirra og barnanna. Gerðar voru svo breytingar í samræmi við óskir þeirra. Gestirnir voru á því að vel hafi tekist til, enda skólinn einstaklega fallegur. Í listasmiðju leikskólans er starfandi Anna leikskólakennari og listakona sem greinilega hefur ánægju af starfi sínu, þvílík listaverk sem börnin eru að vinna að undir hennar leiðsögn. Það hafði einhver á orði að hæfni barnanna í Lyngheimum í myndlist væri langt umfram það sem þekktist í öðrum leikskólum.
Í haust tók leikskólinn upp samstarf við Myndlistarskólann í Reykjavík sem núna er starfræktur ekki langt frá á Korpúlfsstöðum. Elstu börnin fara þangað einu sinni í viku og læra á og kynnast margskonar vinnubrögðum í myndlist. Myndir segja meira en nokkur orð svo skoðið endilega myndirnar hér.