Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Marbakka

Fréttir|18. janúar 2023
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Það er óhætt að segja að gleði og fagmennska hafi einkennt viðburð Faghópsins í gær í leikskólanum Marbakka. Alda Agnes leikskólastjóri bauð fjölmenni velkomið í leikskólann og sagði örstutt frá sögu leikskólans, en hann hefur frá upphafi (1986) lagt áherslu á hugmyndafræði Reggio Emilia.

Það er óhætt að segja að gleði og fagmennska hafi einkennt viðburð Faghópsins í gær í leikskólanum Marbakka. 
Alda Agnes leikskólastjóri bauð fjölmenni velkomið í leikskólann og sagði örstutt frá sögu leikskólans, en hann hefur frá upphafi (1986) lagt áherslu á hugmyndafræði Reggio Emilia. Síðasta ár hefur starfsmannahópurinn verið að rýna í stöðu hugmyndafræðinnar innan leikskólans og skerpa á henni þar sem þörf var á. Hún hvatti þátttakendur til að fara um skólann og taka samræðu um faglegt og skapandi starf í leikskólum. Það gerðu þátttakendur og mátti sjá fólk spjalla vítt og breytt um leikskólann. 

Um allan leikskólann mátti sjá hvað starfsfólk leggur mikla áherslu á að búa börnunum örvandi umhverfi og viðfangsefni sem hvetja börnin til þess að prófa sjálf og efla þannig sköpunarkraft sinn. Frjáls leikur er greinilega í hávegum hafður í Marbakka og mikið um kveikjur hér og þar, sem svo börnin nýta sér til fjölbreyttrar upplifunar. 

Við þökkum öllum þeim fjölmörgu (ca. 80) sem komu í leikskólann Marbakka í gær og kærar þakkir fær Alda Agnes, deildarstjórar og annað starfsfólk sem lagði sig greinilega fram um að bjóða okkur öll velkomin. 

Við tókum að vanda helling af myndum sem sýna og gefa hugmyndir af viðfangsefnum í leikskólanum.