Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Hofi

Næsti viðburður skólaársins á vegum Faghóps um skapandi leikskólastarf verður haldinn í leikskólanum Hofi við Gullteig í Reykjavík þriðjudaginn 18. nóvember kl.17-19. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.
Næsti viðburður skólaársins á vegum Faghóps um skapandi leikskólastarf verður haldinn í leikskólanum Hofi við Gullteig í Reykjavík (sjá kort) þriðjudaginn 18. nóvember kl.17-19. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.
Leikskólinn Hof er í björtu og fallegu húsi sem býður upp á marga möguleika í leik og starfi. Virðing, gleði og sköpun eru einkunnarorð leikskólans og hluti af hugmyndafræði hans. Þau eru nátengd og á milli þeirra er röklegt samhengi. Barn sem nýtur virðingar finnur til öryggis og gleði sem síðan fær útrás í skapandi vinnu. Barnið verður virkur og skapandi einstaklingur. Hugtakið virðing er grundvallarhugtak í mannlegu samfélagi og þar með í öllu uppeldisstarfi. Í leikskólanum Hof stígur barnið sín fyrstu skref í samfélaginu utan veggja heimilis.
Leikurinn er aðalsmerki leikskólastarfsins í Hofi því að frjáls leikur barna er mikilvægasta náms- og þroskaleið barna og eðlilegasta tjáningarform þeirra. Leikur er sjálfsprottinn og börnum eðlislægur.