Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Garðaseli á Akranesi

Síðasti viðburður skólaársins á vegum Faghóps um skapandi leikskólastarf verður haldinn fimmtudaginn 8. maí nk. Það er leikskólinn Garðasel á Akranesi sem býður að þessu sinni upp á Skapandi leikskólastarf. Við byrjum á Aðalfundi sem tekur örstutta stund og svo fáum við að heyra allt um fallega nýlega leikskólann Garðasel. Lagt verður af stað stundvíslega, í langferðabifreið, frá Listasafni Kópavogs-Gerðarsafni, Hamraborg 4 í Kópavogi kl.16 (næg bílastæði) og komið til baka um kl. 20. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og Samtök áhugafólks um skólaþróun gera okkur kleift að bjóða upp á rútuferð báðar leiðir, nema einhver vilji verða eftir í þessum glæsilega leikskóla. Boðið verður upp á kvöldverð, súpu og brauð í Stúkuhúsinu. Það þarf að skrá sig.
Síðasti viðburður skólaársins á vegum Faghóps um skapandi leikskólastarf verður haldinn fimmtudaginn 8. maí nk. Það er leikskólinn Garðasel á Akranesi sem býður að þessu sinni upp á Skapandi leikskólastarf. Við byrjum á Aðalfundi sem tekur örstutta stund og svo fáum við að heyra allt um fallega nýlega leikskólann Garðasel.
Lagt verður af stað stundvíslega, í langferðabifreið, frá Listasafni Kópavogs-Gerðarsafni, Hamraborg 4 í Kópavogi kl.16 (næg bílastæði) og komið til baka um kl. 20:30.
Að vanda er ókeypis á viðburðinn og Samtök áhugafólks um skólaþróun gera okkur kleift að bjóða upp á rútuferð báðar leiðir, nema einhver vilji verða eftir í þessum glæsilega leikskóla. Boðið verður upp á kvöldverð, súpu og brauð í Stúkuhúsinu. Skráningu er lokið, en það er hægt að hringja í Fólu í síma 8471602.
Leikskólinn Garðasel er einn glæsilegasti leikskóli landsins. Leikskólinn flutti í nýja byggingu sumarið 2023 og stækkaði við það talsvert. Heilsuleikskólinn Garðasel býður börnum upp á kærleiksríkt og öruggt umhverfi, þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín í leik og starfi á sínum forsendum. Áhersla er lögð á heilbrigðan lífsstíl sem ætti að fylgja börnunum inn í fullorðinsárin.
Skólinn starfar eftir hugmyndafræði Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur en meginmarkið hennar er að stuðla að heilsueflingu leikskólasamfélagsins með áherslu á hreyfingu, næringu og sköpun í leik.
Í Heilsustefnunni er markvisst unnið með hreyfingu og sköpun á þann hátt að öll börn fá skipulagðar stundir í hreyfingu þar sem viðfangsefnin byggja á leik og gleði. Í hreyfistundum er stuðst við aldursmiðaða færniþætti Heilsubókar barnsins án þess þó að æfa börn sérstaklega í afmarkaðri færni.
