Skapandi leikskólastarf í Geislabaugi

Miðvikudaginn 20. nóvember nk. kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Geislabaugi, Kristnibraut 26, 113 Reykjavík. Leikskólinn er fimm deilda leikskóli sem notast við hugmyndafræði Reggio Emilia. Börnin eru hvött til að virkja öll skilningarvit, málin sín hundrað og skapandi hugsun. Grunnhugmyndir í Reggio Emilia eru sóttar m.a. til Jean Piaget, sem leggur aðaláherslu á vitsmuna- og siðgæðisþroska barnsins, þ.e. að barnið byggi upp eigin þekkingu í gegnum skynjun sína og samskipti við annað fólk. Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.
Miðvikudaginn 20. nóvember nk. kl. 17-19 verður viðburðurinn Skapandi leikskólastarf í leikskólanum Geislabaugi, Kristnibraut 26, 113 Reykjavík. Leikskólinn er fimm deilda leikskóli sem notast við hugmyndafræði Reggio Emilia.
Börnin eru hvött til að virkja öll skilningarvit, málin sín hundrað og skapandi hugsun. Grunnhugmyndir í Reggio Emilia eru sóttar m.a. til Jean Piaget, sem leggur aðaláherslu á vitsmuna- og siðgæðisþroska barnsins, þ.e. að barnið byggi upp eigin þekkingu í gegnum skynjun sína og samskipti við annað fólk. Að læra um eigið umhverfi skiptir einnig miklu máli í uppgötvun barnsins og styrkir sjálfsvitund þess.
Færslur starfsfólks Geislabaugs á Instragram hafa vakið mikla athygli, enda greinilega frábært fagstarf þar í gangi. Leiðarljós Geislabaugs eru gleði, virðing, sköpun og jafnrétti.
Að vanda er ókeypis á viðburðinn og engin ástæða til að skrá sig, bara mæta og eiga ánægjulega og gefandi stund með kollegum.