Skapandi leikskólastarf í Drafnarsteini

Við áttum dásamlega stund í leikskólanum Drafnarsteini síðdegis í gær. Halldóra (Doja) leikskólastjóri og hennar fólk eru höfðingjar heim að sækja. Stjórn Faghópsins er afskaplega þakklátt fyrir að þau gátu hlaupið í skarðið með svona stuttum fyrirvara. Það var vel mætt og mikil, ánægjuleg og fagleg umræða um leikskólastarf átti sér stað. Við elskum þetta leikskólafólk að koma saman og tala um fallega starfið okkar.
Við áttum dásamlega stund í leikskólanum Drafnarsteini síðdegis í gær. Halldóra (Doja) leikskólastjóri og hennar fólk eru höfðingjar heim að sækja. Stjórn Faghópsins er afskaplega þakklátt fyrir að þau gátu hlaupið í skarðið með svona stuttum fyrirvara. Það var vel mætt og mikil, ánægjuleg og fagleg umræða um leikskólastarf átti sér stað. Við elskum þetta leikskólafólk að koma saman og tala um fallega starfið okkar.
Halldóra (Doja) sagði frá starfi leikskólans fyrir og eftir sameiningu Drafnarborgar og Dvergasteins. Drafnarsteinn er sex deilda skóli í dag með 122 börnum. Skólinn starfar í þremur húsum á tveim starfsstöðvum, Seljavegi 12 og Drafnarstíg 4. Í gömlu Drafnarborg er ungbarnadeild fyrir börn 1-3 ára og á Seljavegi eru 3-6 ára börn. Minna húsið á Seljavegi er deild elstu barnanna. Þar er að sögn stjórnenda alveg dásamlegt samfélag 16 barna.
Halldóra sagði okkur frá teymisvinnu í leikskólanum, allir starfsmenn leikskólans eru í a.m.k. einu teymi. Þeir óska eftir því að vera í ákveðnum teymum þar sem sérþekking þeirra nýtist hvað best. Teymisfundir eru í 45 mín. á mánudögum og fundar eitt teymi í einu. Það er mikil ánægja með fyrirkomulagið og þetta gefur öllu starfsfólki líka tækifæri á að að ígrunda starfið og taka þannig þátt í faglegri umræðu.
Hulda Lovísa Ámundadóttir deildarstjóri flutti okkur erindi sem hún byggði á starfendarannsókn sem hún gerði um starfið í listasmiðju Drafnarsteins. Erindið var afar áhugavert, hún sagði okkur frá því að af því að það varð einn daginn enginn ábyrgur fyrir smiðjunni þá tók að safnast þar fyrir ýmislegt sem ekki átti að vera þar. Farið var sjaldan með börnin í smiðjuna og almennur áhugi á listum dvínaði. Í rannsókninni ákvað Hulda að ýta við starfsfólki og hélt örfyrirlestra um gildi listsköpunnar og mikilvægi þess að börnin fengju að skapa sjálf út frá eigin hugmyndum. Það dró verulega úr "konuföndri" og starfsfólk er mun meðvitaðara um að ýta undir sköpunarkraft barna í stað þess að vera með fyrirfram tilbúin verk. Stofnað var listasmiðjuteymi sem sér til þess að viðhalda árangri rannsóknarinnar og ýtir það reglulega við öllu starfsfólki. Þá er einnig rætt um í teyminu sköpun barna í tengslum við það ævintýri sem verið er að vinna að. Á vörönn er verið að vinna með söguna um Gilitrutt og mátti víða um skólan sjá ummerki þess.
Eftir erindi Huldu gengu stjórnendur með gestum um leikskólann og fagleg umræða varð inni á öllum deildum skólans. Það vakti athygli að inni á deildum eru engin borð, börnin leika sér á gólfinu og starfsfólk fer niður til þeirra. Mikið var rætt um mathöllina (borðsalurinn) þar reynir á sjálfstæði og ákvörðunarrétt barnanna. Þau velja sér sæti sjálf og að sögn er umræða meðal þeirra afar áhugaverð fyrir starfsfólk að hlusta á. Matarsóun hefur marktækt minnkað með þessu fyrirkomulagi og er það í anda Grænfánaverkefnisins sem leikskólinn tekur þátt í. Það er afar grænt umhverfi í Drafnarsteini, börn og foreldrar hafa komið í leikskólann með ógrynni af afleggjurum sem gengur vel að koma til. Það er því afar blómlegt í Drafnarsteini,
Stjórn Faghópsins vill þakka stjórnendum í Drafnarsteini kærlega fyrir dásamlegt síðdegi í gær. Við tókum að vanda fullt af myndum sem hægt er að sjá hér.
