Skapandi leikskólastarf í Brákarborg

Þriðjudaginn 21. mars kl. 17-19 er komið að leikskólanum Brákarborg að vera með viðburðinn Skapandi leikskólastarf. Brákarborg hóf starfsemi árið 1952 og er því einn af elstu leikskólum Reykjavíkurborgar. Leikskólinn flutti í nýtt húsnæði s.l. haust og því er spennandi að heimsækja leikskólann og heyra um leikskólastarfið í nýjum aðstæðum. Þið eruð öll velkomin og að vanda þarf ekki að skrá sig heldur bara að mæta í góðu skapi og verja góðu og faglegu síðdegi með kollegum sínum.
Þriðjudaginn 21. mars kl. 17-19 er komið að leikskólanum Brákarborg, Kleppsvegi 150-152, 104 Reykjavík (kort til að rata eftir) að vera með viðburðinn Skapandi leikskólastarf í samvinnu við Faghóp um skapandi leikskólastarf.
Brákarborg hóf starfsemi árið 1952 og er því einn af elstu leikskólum Reykjavíkurborgar. Leikskólinn flutti í nýtt húsnæði s.l. haust og því er spennandi að heimsækja leikskólann og heyra um leikskólastarfið í nýjum aðstæðum.
Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði John Deweys þar sem allir fá að læra af reynslu sinni. Einingakubbar Caroline Pratt ásamt jákvæðri agastefnu eru aðalnámstæki Brákarborgar þar sem 'Lausnahringurinn' skapar sjálfstæði í samskiptum með virðingu og hæfni til að setja mörk.
Þið eruð öll velkomin og að vanda þarf ekki að skrá sig heldur bara að mæta í góðu skapi og verja góðu og faglegu síðdegi með kollegum sínum.
