Skapandi leikskólastarf í Álfheimum á Selfossi

Fréttir|29. mars 2023
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Það er leikskólinn Álfheimar sem ætlar að bjóða okkur upp á næsta viðburð í Skapandi leikskólastarfi fimmtudaginn 27. apríl nk. kl. 17:00-19:00. Farið verður með langferðabíl frá Smáralind, efra bílaplani sunnan megin við húsið. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 16:00 og komið heim um kl. 20:30. Í öllu starfi Álfheima er lögð áhersla á leikinn sem aðalnámleið barnanna, samskipti milli barna, á milli barna og starfsfólks og síðast en ekki síst sjálfbærni- og útinám í ýmsum birtingamyndum. Leikskólinn Álfheimar hefur verið „sí stækkandi“ leikskóli. Í upphafi árið 1988 var hann 3ja deilda, en í dag er hann orðinn 5 deilda með 46 starfsmönnum og 102 börnum.

Það er leikskólinn Álfheimar sem ætlar að bjóða okkur upp á næsta viðburð í Skapandi leikskólastarfi fimmtudaginn 27. apríl nk. kl. 17:00-19:00. Farið verður með langferðabíl frá Smáralind, efra bílaplani sunnan megin við húsið. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 16:00 og komið heim um kl. 20:30.

Í öllu starfi Álfheima er lögð áhersla á leikinn sem aðalnámleið barnanna, samskipti milli barna, á milli barna og starfsfólks og síðast en ekki síst sjálfbærni- og útinám í ýmsum birtingamyndum.  Leikskólinn hefur í tvo áratugi unnið að markmiðum Landverndar um Grænfána og hefur undantekningarlaust fengið góða umsögn í úttektum Landverndar og núna flaggar Álfheimar Grænfánanum með stolti í tíunda sinn. Umhverfismál eru börnum og starfsfólki hugleikin og er lögð megin áherslu á að nýta, njóta og vernda náttúruna og umhverfið. Þá ríkir sú skoðun í Álfheimum að reynslumiðað nám (e. Learning by doing) skilji mest eftir í hugum barna á þessum aldri, þar ná þau að tengja saman orð og athafnir. 
Leikskólinn Álfheimar hefur verið „sí stækkandi“ leikskóli. Í upphafi árið 1988 var hann 3ja deilda, en í dag er hann orðinn 5 deilda með 46 starfsmönnum og 102 börnum.

Við ætlum að byrja á því að heimsækja leikskólann Álfheima og síðan verður farið á veitingahúsið Messinn í nýja miðbæ Selfoss. Þaðan er svo lagt aftur af stað í Smáralind. Hver og einn borgar sinn mat og drykk. Tvírétta fisk kvöldverður kostar 6.870 kr. (Aðalréttur: Þorskur með karrýsósu, mangó chutney, eplum og sítrónu og Bleikja með möndluflögum, smjöri, hunangi, sítrónu og kirsuberjatómötum. Eftirréttur: Lava kaka með berjum og rjóma. Grænkerar og vegan fólk fær sér pönnu fyrir sig.

Að vanda er ókeypis inn á viðburðinn, en þeir sem ætla að koma með okkur í langferðabifreið og út að borða verða að skrá sig hér.