Skapandi leikskólastarf í Álfheimum

Fréttir|28. apríl 2023
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Faghópur um skapandi leikskólastarf bauð upp á skemmtilega og eftirminnilega heimsókn í leikskólann Álfheima á Selfossi í gær. Jóhanna Þórhallsdóttir leikskólastjóri fór yfir sögu leikskólans og starfið í heild sinni. Síðan var leikskólinn skoðaður og starfsfólk deilda sagði okkur nánar frá starfinu. Leikskólinn Álfheimar hefur í tvo áratugi unnið að markmiðum Landverndar og hafa tíu sinnum hlotið Grænfánann og er hann því fyrst og fremst Grænfánaleikskóli með áherslu á útinám.  Lesa meira....

Faghópur um skapandi leikskólastarf bauð upp á skemmtilega og eftirminnilega heimsókn í leikskólann Álfheima á Selfossi í gær.

Byrjað var á að halda aðalfund Faghópsins sem Fjóla Þorvaldsdóttir formaður, stýrði.

Jóhanna Þórhallsdóttir leikskólastjóri fór yfir sögu leikskólans og starfið í heild sinni. Síðan var leikskólinn skoðaður og starfsfólk deilda sagði okkur nánar frá starfinu. Leikskólinn Álfheimar hefur í tvo áratugi unnið að markmiðum Landverndar og hafa tíu sinnum hlotið Grænfánann og er hann því fyrst og fremst Grænfánaleikskóli með áherslu á útinám. 

Það er alltaf á viðburðum sem þessum að smáatriðin skipta svo miklu máli. Við fengum að kynnast útungunarvél. Í fyrra fengu börnin á elstu deildinni að prófa að unga út hænueggjum og tókst það ljómandi vel. Ungarnir, sem núna eru orðnir að hænum í hænsnakofa úti í bæ, verpa duglega eggjum og núna eru elstu börnin að reyna að unga út eggjum frá þeim eins og börnin í fyrra. Þetta er geysi spennandi verkefni sem bæði börn og starfsfólk hefur mjög gaman af. 
Við fengum að heyra af mjög áhugaverðri rannsókn á sjálfbærni í leikskólastarfi sem verið er að vinna að í leikskólanum. Það eru níu starfsmenn sem taka þátt, en Margarita Hamatsu er að vinna að M.Ed. verkefni sínu, sem fjallar um sjálfbærni og tengja hana betur inn í daglegt starf í leikskólanum. Það verður mjög spennandi að lesa niðurstöður hennar sem eiga að koma út í október á þessu ári. 

Þegar heimsókninni í leikskólann var lokið var farið á veitingastaðinn Messann, þar sem boðið var upp á fiskrétti og súkkulaðiköku í desert. Mjög notaleg stund þrátt fyrir snjóinn úti. Takk kærlega Jóhanna leikskólastjóri og hennar fólk fyrir okkur

Að vanda tókum við alveg fullt af myndum sem hægt er að skoða hér.