Skapandi leikskólastarf – Fagurfræði í leikskóla

Í gær var viðburður á vegum Faghóps um skapandi leikskólastarf þar sem Anna Gréta Guðmundsdóttir leikskólakennari og listasmiðjustjóri í leikskólanum Sæborg hélt erindi um Fagurfræði í leikskóla. Það var unun að hlusta á Önnu Grétu hún er svo dásamlegur fagmaður. Erindið var blanda af faglegum fróðleik og praktískum ráðum til okkar leikskólakennara. Anna Gréta vitnaði m.a. í Loris Malaguzzi sem sagði meðal annars:"Öll kunnum við að meta þrá barna eftir að kynnast heiminum og tilhneigingin hefur verið að koma til móts við þá þrá með verkefnablöðum, bókum, beinni kennslu og tækjum sem gera allt fyrir okkur. Mun færri hafa skilning á því að börn vilja kynnast heiminum sjálf eins mikið og mögulegt er í gegnum skynfæri sín, undrun, greind, hendur, líkama, hugsanir og lífskraft. Þau vilja rannsaka sjálf, reyna, gera mistök, reyna aftur, undrast og skilja... Þau vilja skilja orsök og afleiðingu með fyrirbærum og staðreyndum. Þauvilja leika sér til þess að reyna á sig, læra hvernig þeim tekst ætlunarverk sitt og búa til heima með þykjustuleikjum þar sem hið ómögulega gerist. Þau vilja tala, skrifa og búatil tónlist til þess að læra samtal við sig sjálf og aðra. Börn nota ímyndunaraflið til þess að gera uppfinningar" (Loris Malaguzzi).
Í gær var viðburður á vegum Faghóps um skapandi leikskólastarf þar sem Anna Gréta Guðmundsdóttir leikskólakennari og listasmiðjustjóri í leikskólanum Sæborg hélt erindi um Fagurfræði í leikskóla. Það var unun að hlusta á Önnu Grétu hún er svo dásamlegur fagmaður. Erindið var blanda af faglegum fróðleik og praktískum ráðum til okkar leikskólakennara. Anna Gréta vitnaði m.a. í Loris Malaguzzi sem sagði meðal annars:
"Öll kunnum við að meta þrá barna eftir að kynnast heiminum og tilhneigingin hefur verið að koma til móts við þá þrá með verkefnablöðum, bókum, beinni kennslu og tækjum sem gera allt fyrir okkur. Mun færri hafa skilning á því að börn vilja kynnast heiminum sjálf eins mikið og mögulegt er í gegnum skynfæri sín, undrun, greind, hendur, líkama, hugsanir og lífskraft. Þau vilja rannsaka sjálf, reyna, gera mistök, reyna aftur, undrast og skilja... Þau vilja skilja orsök og afleiðingu með fyrirbærum og staðreyndum. Þau
vilja leika sér til þess að reyna á sig, læra hvernig þeim tekst ætlunarverk sitt og búa til heima með þykjustuleikjum þar sem hið ómögulega gerist. Þau vilja tala, skrifa og búa
til tónlist til þess að læra samtal við sig sjálf og aðra. Börn nota ímyndunaraflið til þess að gera uppfinningar" (Loris Malaguzzi).
Anna Gréta sagði okkur frá starfi sínu sem listasmiðjustjóri í Sæborg og það var dásamlegt að sjá hvað hún gefur hverju og einu barni tíma til þess að upplifa, uppgötva og skynja verkefnin sín. Hægt er að sjá skjákynningu hennar hér.
