Sjötta þingi Kennarasambandsins slitið

Fréttir|4. apríl 2014

Kjöri Þórðar Hjaltested sem formanns KÍ og kjöri Aðalheiðar Steingrímsdóttur sem varaformanns KÍ var formlega lýst á sjötta þingi Kennarasambandsins sem lauk rétt í þessu. Þórður óskaði Aðalheiði velfarnaðar í starfi varaformanns og þakkaði um leið fráfarandi formanni Björgu Bjarnadóttur fyrir vel unnin störf.

Þórður sagði í ávarpi sínu að hann myndi eins og áður starfa í þágu allra félagsmanna. „Meginhlutverk mitt verður að gæta hagsmuna kennarastéttarinnar, beita mér í skóla- og kjaramálum í samræmi við þá stefnumótun sem hér hefur verið samþykkt. Stefna og samþykktir þessa þings eru leiðarljós fyrir starfið næstu fjögur árin,“ sagði Þórður

Menntun verður að meta til launa, sagði Þórður, og ekki verður lengur unað við að einungis lægstu laun í landinu hækki. Þórður sagði brýnna en áður að félagsmenn standi sameinist um hagsmunamál stéttarinnar. „Samstaða um menntun – forsenda framfara er yfirskrift þessa þings. Framtíð hverrar þjóðar byggir á menntunarstigi hennar og þær þjóðir sem fremstar standa, eru líklegastar til að ná lengst í framtíðinni. Menntun er arðbærasta fjárfesting sem til er,“ sagði Þórður Hjaltested, formaður KÍ.

Þurfum að vera sýnileg í opinberri umræðu
Aðalheiður Steingrímsdóttir, nýr varaformaður KÍ, ávarpaði þingið. Hún sagði það hlutverk sambandsins og skyldu að standa vörð um skólastarfið og aldrei mætti láta deigan síga í þeirri baráttu. „Það er hlutverk okkar að miðla upplýsingum til almennings og taka frumkvæðið í skólamálaumræðunni í landinu. Þó að róðurinn sé þungur og margt erfitt við að etja í tíðarandanum þá dugir ekkert annað en að halda áfram og setja í fimmta gírinn,“ sagði Aðalheiður.

Hún sagði halda því fram að KÍ stæði nú á tímamótum; að baki væri mótunarár en nú væri runnin upp sú stund þegar taka þyrfti ákvarðanir um hvert skyldi stefna. „Það er mikilvægt að við finnum sem bestar aðferðir við að aðlaga okkur að breyttum aðstæðum. Við þurfum að vera sýnileg í opinberri umræðu, það eru tvímælalaust hagsmunir okkar allra að rödd okkar styrkist í kjara- og menntamálaumræðu á Íslandi,“ sagði Aðalheiður Steingrímsdóttir.

Undir lok þings voru kvaddir fulltrúar sem nú hætta í stjórn KÍ. Þau eru Guðbjörg Ragnarsdóttir (FG), Hanna Berglind Jónsdóttir (FL), Kolbrún Sigurðardóttir (FF), Rósa Ingvarsdóttir (FG), Þorgerður Laufey Diðriksdóttir (FG). Voru þeim færðar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu KÍ.
Sjötta þingi Kennarasambands Íslands var slitið skömmu fyrir klukkan 17. Næsta þing verður haldið að fjórum árum liðnum.