Sjö prósent hafa greitt atkvæði hjá FT

Kjörsókn í stjórnarkjöri Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum var 7,31 prósent á slaginu tólf í dag.
Félagar í FT greiða nú atkvæði um nýja stjórn félagsins. Ný stjórn tekur við stjórnartaumum á aðalfundi FT í apríl næstkomandi.
Atkvæðagreiðslan hófst í hádegi í gær, mánudag 9. mars, og henni lýkur klukkan tólf á fimmtudag, 12. mars. Rétt ríflega sjö prósent höfðu greitt atkvæði í hádeginu.
Félagsfólk í FT er hvatt til að taka þátt í kosningum um nýja stjórn félagsins.
Frambjóðendur eru í stafrófsröð
- Dagný Arnalds
- Edda Austmann
- Ólöf Sigursveinsdóttir
- Sandra Rún Jónsdóttir
- Sóley Þrastardóttir
- Þórarinn Stefánsson
- Örlygur Benediktsson

Kynning frambjóðenda
Hægt er að lesa um starfsferil og helstu áherslur frambjóðenda á Kosningasíðu FT.
Um atkvæðagreiðsluna
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum.
Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin.
- Smelltu á Kosning í stjórn FT 2026 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Merktu við þá fjóra frambjóðendur sem þú vilt kjósa í stjórn.
- Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt er móttekið.
- Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við.
Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
Þau fjögur sem fá flest atkvæði verða aðalfulltrúar. Næstu þrír verða varafulltrúar eftir atkvæðamagni.