Sjálfstraust er gott veganesti út í lífið

Fréttir|22. desember 2023

Mestu máli skiptir að börnin fari vel nestuð yfir á næsta skólastig, segir María Petrína Berg leikskólastjóri. Skólavarðan heimsótti Maríu og Sigurbjörtu Kristjánsdóttur deildarstjóra í leikskólann Holt í Reykjanesbæ.

Við fengum höfðinglegar móttökur í leikskólanum Holti einn sólríkan morgun í sept-ember. Hringferðarhópur KÍ var kominn í Reykjanesbæ og heimsókn í leikskólann var fyrsti dagskrárliðurinn.

María Petrína Berg leikskólastjóri kom til dyra þegar okkur bar að garði. Hún lóðsaði okkur um skólann og sagði okkur frá starfinu og náminu sem fer fram á degi hverjum. Í hverju rými voru börn og kennarar að sinna ólíkum verkefnum og við reyndum að láta lítið fyrir okkur fara.

Hún var fyrst spurð af hverju hún væri stoltust í starfsemi Holts. „Það er ánægjulegt að segja frá því að leikskólinn Holt hefur á undanförnum árum skilað af sér nemendum sem eru vel undirbúnir fyrir næsta skólastig. Þetta má þakka góðu samstarfi skólastiganna, vönduðu starfsfólki hér í Holti og metnaðarfullri uppeldisstefnu Reggio Emilia. Þá verður að nefna Menntasvið Reykjanesbæjar sem heldur vel utan um þennan málaflokk og svo síðast en ekki síst getum við verið stolt og þakklát fyrir jákvæða og áhugasama foreldra,“ segir María.

Hún segir það skipta mestu máli að börnin fari vel nestuð yfir á næsta skólastig. „Við viljum sjá börnin með gott sjálfstraust og prúðmannlega framkomu, en líka að þau finni fyrir gleði og kærleika gagnvart náunganum og beri virðingu fyrir umhverfi sínu. Þetta er gott veganesti út í lífið.“

Góður andi á vinnustað er ekki sjálfgefinn og við sem störfum saman verðum að sameinast um að halda uppi góðum anda

Nýtur verkefna hversdagsins

Skólamenning og skólabragur eru hugtök sem eru Maríu hugleikin. „Kannski er ég stoltust af því hvað okkur hefur tekist að byggja upp gott lærdómssamfélag og jákvæðan skólabrag hér. Góður andi á vinnustað er ekki sjálfgefinn og við sem störfum saman verðum að sameinast um að halda uppi góðum anda. Þetta hefur okkur tekist og hér starfar afar samhentur starfsmannahópur sem einbeitir sér að því að halda uppi gleði, jákvæðni og kærleika í leik og starfi – og þetta skapar svo í raun fagmennskuna í skólanum.“

Orð Maríu passa vel við einkunnarorð skólans sem eru gleði, virðing, sköpun og þekk-ingarleit. María á sér einnig mjög gott mottó en það er gera betur í dag en í gær – og læra af mistökum jafnt sem sigrum. „Ég hef vaxið og dafnað í störfum mínum og gengið vel í gegnum mín leikskólaár. Það er mikilvægt að hafa trú á sjálfri sér og sínum markmiðum. Ég sinni bestu vinnunni dag frá degi og nýt þess að sinna verkefnum hversdagsins.“

María segir alltaf ánægjulegt að sjá hugmyndir verða að veruleika og greina árangur á sama tíma. „Ég horfi björtum augum til framtíðar með samheldinn og samstíga starfs-mannahóp sem vinnur að þróun skólastarfs.“

Aðeins um Holt

Leikskólinn Holt tók til starfa 1985. Byggt var við skólann og hann stækkaður um tvær deildir 2003. Lengst af voru fjórar deildir en haustið 2022 urðu eru þær sex. Börnin í skólanum eru 107.

Grunnur skólastarfsins er byggður á hugmyndafræði Reggio Emilia sem felur í sér að virðing er borin fyrir barninu og hugmyndum þess. Könnunaraðferðin er einnig nýtt til þekkingarleitar og þá kennir tónmenntakennari við skólann einn dag í viku.

Skólinn fékk tilnefningu til foreldraverðlauna Heimilis og skóla árið 2022.

Leikgleði í gegnum sögur og söng

Leikskólinn Holt hefur um langt árabil tekið þátt í fjölda þróunarverkefna hérlendis og erlendis og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar í þeim efnum. Nýlegt verkefni, sem ber heitið Leikgleði í gegnum sögur og söng, hefur vakið athygli. Sigurbjört Kristjánsdóttir deildarstjóri hefur verið fremst meðal jafningja í að koma verkefninu á laggirnar af hálfu Holts.


Sigurbjört Kristjánsdóttir deildarstjóri og María Petrína Berg, skólastjóri Holts.

„Þetta er spennandi verkefni en upphafið má rekja til þess að síðasta vor fengu ellefu leikskólar hér í Reykjanesbæ, ásamt bókasafni bæjarins, styrk úr Sprotasjóði til að vinna að verkinu í sameiningu. Markmið verkefnisins er að styrkja hugtakaskilning, orðaforða, hlustunarskilning og frásagnarhæfni leikskólabarna.

Hugmyndina að verkefninu átti Ólöf Kristín Guðmundsdóttir, kennsluráðgjafi á Menntasviði Reykjanesbæjar, og gegnir hún verkefnastjórn. Þá er Birte Harksen leikskólakennari titluð sérfræðingur í verkefninu, en hún er vel þekkt fyrir ötult starf er kemur að málörvun ungra barna.

Málörvun, samkennd og félagstengsl

Í verkefninu eru einmitt notaðar málörvandi aðferðir sem byggja á leik, söng og virkni. „Það góða við þessar aðferðir er að þær eru til þess fallnar að auka samkennd og styrkja félagstengsl. Þannig getum við stuðlað að auknu öryggi hjá börnum; sjálfstraust þeirra eflist og auk þess hæfnin til að tjá sig. Það gefur augaleið að barn sem á auðvelt með að skilja aðra, getur og þorir að tjá sig er líklegra til að líða betur en barn sem hefur þessi atriði ekki á takteinum,“ segir María og bætir við að verkefnið sé ekki síður mikilvægt í ljósi þess að í Reykjanesbæ er um þriðjungur leikskólabarna með annað móðurmál en íslensku.

Tilfinningaleg farsæld barna „Þess vegna er svo mikilvægt að leggja áherslu á málörvun til að koma í veg fyrir skerta möguleika í framtíðinni eða jafnvel félagslega jaðarsetningu,“ segir María og bendir í framhaldinu á að niðurstöður nýlegra rannsókna bendi til þess að leikskólabörn hafi oft lítinn og einhæfan orðaforða.

„Við þessu þarf að bregðast sem fyrst á skólagöngunni þar sem það verður erfiðara um vik eftir því sem á líður. Aðferðirnar sem beitt er í Leikgleði í gegnum sögur og söng gagnast mjög vel. Þeim er ætlað að stuðla að aukinni málfærni og tilfinningalegri farsæld allra barna – óháð því hvort þau séu fjöltyngd eða ekki,“ segir María.

Aðeins um verkefnið

Þróunarverkefnið Leikgleði í gegnum sögur og söng hefur vakið verðskuldaða athygli en alls taka 11 leikskólar og bókasafn Reykjanesbæjar þátt.

Sigurbjört Kristjánsdóttir, deildastjóri á Holti og tengilliður skólans við verkefnið, hélt fróðlegt erindi um verkefnið á Skólamálaþingi KÍ í haust.

Hér er hægt að lesa meira um verkefnið.

Hér er hægt að nálgast upptöku af erindi Sigurbjartar. Umfjöllun um Leikgleði í gegnum sögur og söng hefst á mínútu 34.


Sigurbjört Kristjánsdóttir deildastjóri fjallaði um verkefnið Leikgleði í gegnum sögur og söng á Skólamálaþingi KÍ sem fór fram í byrjun október.

Mikill áhugi á félagsmálum

María Petrína er vel kunnug innan Kennarasambandsins enda hefur hún gegnt fjölmörgum ábyrgðarstöðum fyrir sambandið. Má þar nefna formennsku fyrir hönd Félags stjórnenda leikskóla (FSL) í skólamálanefnd og í samninganefnd FSL, setu í framkvæmdastjórn Skólamálaráðs KÍ og stjórn Rannsóknasjóðs KÍ og er þá ekki allt upptalið.

„Ég hef lengi haft mikinn áhuga á að taka þátt í starfi Kennarasambandsins og þeirri göfugu vinnu sem þar fer fram. Innan KÍ vinnur hópur fólks af miklum metnaði fyrir hönd stéttarfélagsins. Ég er stolt af því að tilheyra hópi þar sem sterk liðsheild, vönduð vinnubrögð, gagnsæi og heiðarleiki eru einkennandi hvert sem litið er.“

María á að baki nærfellt þrjátíu ára feril innan leikskólans; allt frá því að vinna við ræstingar, í eldhúsinu, við kennslu og undanfarin sextán ár við stjórnun. „Ég bý yfir dýrmætri reynslu sem ég reyni að miðla KÍ til heilla. Þau sem þekkja til mín vita að ég hef bæði kjark og faglegan metnað til að standa vörð um gildi leiksins og réttindi barna,“ segir María Petrína Berg skólastjóri og bætir við að hún hlakki til framtíðarinnar sem muni bera ný verkefni og tækifæri í skauti sér.

Við viljum sjá börnin með gott sjálfstraust og prúðmannlega framkomu, en líka að þau finni fyrir gleði og kærleika gagnvart náunganum og beri virðingu fyrir umhverfi sínu. Þetta er gott veganesti út í lífið