Sjálfsmynd listgreinakennaraefna

Kristín Valsdóttir, deildarforseti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands, varði í vetur doktorsritgerð sína „Að verða listkennari – lærdómsferli listamanna“ frá Háskóla Íslands. Rannsóknin fjallar um nám og námsferli þeirra listamanna sem bæta við sig kennaranámi og sjálfsmynd listgreinakennaraefna er áberandi í henni. Tilgangur rannsóknarinnar er að varpa ljósi á þær áskoranir sem mæta nemendum sem koma inn á nýjan vettvang og hefja nám í kennslufræðum á meistarastigi og er markmiðið meðal annars að þróa áfram meistaranám fyrir listamenn. Niðurstöður sýna að hjá þátttakendum eiga sér stað nokkur átök sem tengjast því að fara á milli vettvanga, úr heimi listanna yfir í heim skólanna. Meginniðurstöður Kristínar eru að sú vegferð að tileinka sér nýja sjálfsmynd sem listkennari meðfram því að vera listamaður krefjist tíma. Því hafi lenging kennaranáms töluvert að segja. Þá má nýta niðurstöður rannsóknarinnar við þróun og uppbyggingu frekara meistara- og doktorsnáms fyrir listamenn á Íslandi.
Kristín Valsdóttir byrjaði að læra á píanó þegar hún var sex ára. „Amma mín, sem var frá Seyðisfirði, lærði á píanó. Hún sigldi um tvítugt ásamt vinkonu sinni til Berlínar árið 1931 og þar lögðu þær stund á píanó- og söngnám. Þær voru þó ekki lengi þar vegna uppgangs nasismans. Þó amma lærði síðar hjúkrunarfræði starfaði hún einnig sem píanókennari og undirleikari. Þegar hún giftist afa og flutti til Siglufjarðar með sitt píanó bættist það við þau tvö sem hann átti fyrir. Þau ákváðu því að senda píanó til fjölskyldu minnar í bæinn og þannig kom Pedersen-píanó afa á heimilið þegar ég var sex ára. Í framhaldinu vorum ég og systir mín, sem er tveimur árum eldri, sendar í píanónám. Mér fannst ofsalega gaman að spila þangað til mér var gert að æfa mig dálítið mikið. Ég er frekar mikil félagsvera og var á kafi í dansi og handbolta og fannst ekki spennandi að sitja ein við hljóðfærið í marga klukkutíma á dag. Ég tók mér þess vegna pásu sem unglingur en byrjaði aftur að læra á píanó undir tvítugt.“
Tónlistin togaði einfaldlega í Kristínu Valsdóttur. „Tónlist er eitthvað sem ég hef alltaf tengt við. Ég hef alltaf sungið mikið og foreldrar mínir sögðu að ég hefði þau í svefn þegar ég var lítil og að ég hefði á tímabili eiginlega sungið meira en talað. Ég gat farið inn í annan heim þegar ég var að spila og syngja. Ég var mikið tilfinningabúnt og ég fékk einhverja útrás í tónlistinni.“
Nám í Salzburg
Kristín stundaði nám á náttúru- og síðar félagsfræðibraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti og eftir stúdentspróf kenndi hún í grunnskólanum á Eskifirði í einn vetur. „Sú reynsla mótaði framtíð mína að miklu leyti því mér fannst svakalega skemmtilegt að kenna og þykir enn. Einnig notaði ég tímann til að halda píanókunnáttunni við og var í tímum hjá Pavel Smid sem kenndi við tónlistarskólann og varð síðar organisti við Fríkirkjuna í Reykjavík.“
Enn togaði tónlistin í Kristínu en hún lauk síðar tónmenntakennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands og starfaði eftir það í fimm ár sem tónmenntakennari og almennur kennari við Vesturbæjarskóla. Hún stundaði á sama tíma bæði píanónám og söngnám og hún hefur verið í kórum í áratugi. „Tónlist er eitt af tjáningarformum manneskjunnar. Við tjáum okkur með orðum, tónlist, myndum, látbragði og hreyfingum. Þessi tjáningarmáti hentar mér mjög vel.“
Kristín fór síðan í tveggja ára framhaldsnám í tónlistar- og danskennslu við Orff Institut, tónlistarháskólann Mozarteum í Salzburg í Austurríki. „Þannig gat ég tengt saman tónlistaráhugann og hreyfiþörfina; dansinn.“
Hún kom heim árið 1992, kenndi um tíma í Vesturbæjarskóla og varð stundakennari og síðar aðjúnkt við Kennaraháskóla Íslands til ársins 2008. Kristín starfaði á þessum tíma líka við tónlistarkennslu og kórstjórn í Vesturbæjarskóla og við Dómkirkjuna og Tónlistarskólann í Reykjavík. Þá var hún kennari á sviðslistadeild Listaháskóla Íslands og stundakennari við tónlistardeild og í kennslufræði skólans.
Kristín útskrifaðist árið 2006 með meistaragráðu í menntunarfræðum frá Kennaraháskóla Íslands. Hún hefur verið deildarforseti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands frá því að deildin var stofnuð árið 2009.
Kristín segir að verkefnin sem hún hafi sinnt í starfi sínu við LHÍ séu ótrúlega skemmtileg. „Hér hafði kennaranám verið í boði, byggt sérstaklega á því sem hafði verið í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þegar lög um menntun kennara og skólastjórnenda um að allir kennarar skuli ljúka meistaragráðu voru sett þá var tekin sú ákvörðun hér innanhúss að bæta við fimmtu deildinni, listkennsludeild, við skólann. Hún er kennslufræðideild en fyrir voru deildir tengdar hönnun og arkitektúr, myndlist, sviðslistum og tónlist. Stjórnendum á þeim tíma fannst skólinn ekki mega vera eftirbátur annarra háskóla og að við yrðum að byggja undir kennaranám listamanna og þar með listmenntun allra barna. Nýjungin var að þetta yrði eingöngu meistaranám; tveggja ára nám fyrir þau sem hefðu lokið BA-gráðu í listum og að í deildinni kæmi saman fólk úr öllum listgreinum. Hér fara nemendur í áfanga sem eru tengdir viðkomandi listgrein en nemendur úr öllum greinum fara svo saman í tíma í almennri kennslufræði, heimspeki og sálarfræði og svo í valnámskeið. Þeir eru því að deila reynslu sinni og fólk uppgötvar nýjar hliðar á sjálfu sér þegar það er svona mikið samkrull og samvinna í gangi.“
Í doktorsnám
Upphafið að doktorsverkefninu má segja að hafi verið árið 2008 þegar Kristín sótti um doktorsnám við háskólann í Perth í Ástralíu. Kristín segir að þegar hún hafi verið komin með fulla stöðu við háskóla og séð fyrir sér að hún vildi leiða rannsóknarverkefni þá hafi henni fundist hún verða að hafa doktorsgráðu. „Í meistararitgerð minni fjallaði ég um hvað einkennir farsæla tónmenntakennara og mig langaði til að kafa dýpra. Ég fór fljótlega að vinna rannsókn um fagvitund tónlistarkennara og sendi spurningalista til allra sem útskrifuðust hér á landi vorið 2007 með tónmennta- eða tónlistarkennarapróf. Á grundvelli þeirra svara sem ég fékk vann ég drög að rannsóknaráætlun fyrir doktorsrannsókn og sótti um doktorsnám við háskólann í Perth í Ástralíu. Ástæða þess að ég valdi þennan skóla var að Robert Faulkner tónlistarkennari, sem var prófdómarinn minn í meistaranáminu, var kominn þar með gestaprófessorsstöðu auk þess sem þar var breskur prófessor starfandi sem er leiðandi fræðimaður á sviði fagvitundar tónlistarkennara. Svo var þetta líka ákveðin ævintýraþrá. Ég komst inn og var að fara að flytja út þegar hrunið varð og gerði það fjárhagslega ómögulegt fyrir mig að flytjast yfir hálfan heiminn. Ég afþakkaði því plássið og í kjölfarið sótti ég um starf deildarforseta listkennsludeildar Listaháskóla Íslands, sem þá var auglýst, og fékk starfið. Um áramótin 2009-2010 sótti ég síðan um og fékk að færa doktorsverkefni mitt yfir til Háskóla Íslands.“
Áherslurnar í doktorsverkefninu breyttust smátt og smátt. „Það vöknuðu alls konar spurningar þegar ég var komin á kaf í vinnu við Listaháskóla Íslands við að móta alveg nýtt meistaranám með samstarfsfólki mínu. Við veltum fyrir okkur hvaða kröfur við ættum að gera og hvernig við ættum að mæta vel menntuðum listamönnum sem margir höfðu ekki mikinn fræðilegan bakgrunn og samtímis að virða reynslu þeirra og þekkingu. Námið varð að uppfylla kröfur sem gerðar eru til náms á meistarastigi samfara því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda og virða þekkingu þeirra þó hún sé öðruvísi en þekking þeirra sem eru nýkomnir úr BA-námi úr öðrum greinum við háskóla. Við veltum því fyrir okkur hvernig þeim liði að takast á við þetta nýja umhverfi – í nýju fagi sem krefst annarra vinnubragða en þeir hefðu þjálfun í. Þetta voru of stórar og flóknar spurningar til að ég gæti einungis beint þeim að einu fagi, tónlistinni. Ég fann fljótlega að ég yrði að beina sjónum að því hvað við værum að gera í listkennsludeild og hvaða ögrunum og áskorunum nemendur þar stæðu frammi fyrir. Vorið 2011 hitti ég svo aðalleiðbeinanda minn, dr. Rineke Smilde, og rannsóknin mín tók þá stefnu sem ég hef haldið síðan.“
Ákveðin sjálfsmyndarvinna
Kristín segir að í samtölum sínum við nemendur hafi hún komist að því að sumir voru svolítið hræddir. „Nemendum fannst mörgum erfitt að fara inn í svona fræðileg vinnubrögð. Við því vildum við bregðast því í kennsluréttindanámi fyrir listamenn tel ég afar mikilvægt að nemendur haldi í og þroski vinnubrögð sem þeir hafa tileinkað sér í sínu fagi samhliða því að kynnast öðrum og oft fræðilegri vinnubrögðum. Einnig fengu nemendur neikvæð viðbrögð úti í samfélaginu gagnvart því að fara í kennaranám og þá sérstaklega þeir sem voru þekktir listamenn. Eitt af verkefnum nemenda við upphaf náms var að halda dagbók tengda náminu. Ég ákvað að fá leyfi þeirra til að nýta dagbókarskrifin í mína rannsókn til að fá betri innsýn í hvernig þeim liði við upphaf námsins hjá okkur. Það voru 22 nemendur sem hófu nám árið 2012 og ég bað þá að skila mér hugleiðingum sínum um námið, hvað þeir væru að læra, hverjar væru áskoranirnar og hvernig þeim liði. Þannig gæti ég betur gert mér grein fyrir hverjar þessar helstu áskoranir þeirra væru og komið meira til móts við þeirra þarfir.“
Þessir 22 nemendur úr ólíkum listgreinum skiluðu Kristínu hugleiðingum sínum vikulega. Stundum var þetta ein málsgrein og stundum jafnvel tvær blaðsíður. „Ég notaði síðan niðurstöður úr dagbókunum til að móta viðtalsramma fyrir viðtöl við útskrifaða kennara til að sjá hvernig þeir hefðu þroskast sem kennarar. Ég var meðvituð um að þeir væru að takast á við áskoranir varðandi fræðileg vinnubrögð og þetta samkrull greina. Það sem kom mér hvað mest á óvart var hvað þeir skrifuðu mikið og var greinilega hugleikið hvað þeir fengu neikvæð viðbrögð frá kollegum sínum varðandi það að þeir væru að fara í kennaranám. Það var eins og þeir væru einhvern veginn að taka niður fyrir sig. Þeir voru jafnvel spurðir hvort þeir væru hættir að vinna sem listamenn og hvort þeir væru ekki að „meika það sem listamenn“. Það skerpti á pælingum mínum varðandi það hvernig sjálfsmynd þeirra væri og gæti þróast. Ég hafði pælt mikið í því í meistaraverkefninu en þarna kom það sterkt inn. Þetta á við fleiri en listamenn því þetta á líka við um aðra hópa sem bæta við sig kennsluréttindum ofan á annað nám; það fer fram ákveðin sjálfsmyndarvinna sem er nauðsynleg. Hluti af niðurstöðum mínum er að einstaklingar þurfa að fara í gegnum ákveðna sjálfsskoðun ef þeir ætla raunverulega að tileinka sér að verða kennari en ekki bara að „redda sér“ kennsluréttindum.“
Námsmenningin
Titill rannsóknarinnar er „Að verða listkennari – lærdómsferli listamanna“. „Það er ferli að „verða“. Þeir sem fara í kennaranám verða að taka það inn í myndina. Viðkomandi er ekki bara að ná sér í próf. Viðkomandi hættir ekki að vera myndlistarmaður eða efnafræðingur. Við höfum margar sjálfsmyndir og við verðum að vinna í því að verða líka kennarar.
Þegar listafólkið hefur kennaranám þá hefur það mjög skýra og sterka sjálfsmynd sem listafólk. Flest þeirra hafa starfað sem listamenn og ætla ekkert að yfirgefa þann vettvang. Það skiptir þess vegna máli þegar maður byggir upp námsumhverfið og námsmenninguna að við virðum nemendur og sjálfsmynd þeirra þegar þeir koma í skólann og að við séum ekki að búa til strúktúr og námsmenningu og segjumst ætla að hafa þetta „svona“, óháð því hvaða þekkingu og reynslu nemendur hafa. Þegar við erum að bjóða nám fyrir fullorðna námsmenn þá verðum við að horfa til þess sem námsmaðurinn hefur gert og hver hann er. Þannig skiptir sjálfsmyndin og það sem listamaðurinn tekur með sér inn í námið gífurlega miklu máli.
Nemendurnir fara í ákveðin skyldunámskeið en við þurfum líka að íhuga hvar hæfileikar þeirra og þekking nýtast sem best. Við bjóðum þess vegna upp á opin námskeið og sjálfstæð verkefni til að taka tillit til reynslu þeirra og þekkingar. Við þurfum að leyfa fólki að hafa ákveðið svigrúm innan rammans til að taka frumkvæði að verkefnum og efla sig sem kennarar á vettvangi.
Hitt er svo að nemendur eru að fara inn í nýtt fag; þeir eru ekki bara í meistaranámi sem myndlistarkona eða tónlistarmaður. Þeir eru í meistaranámi sem kennaranemendur og það þýðir að þeir eru að koma inn í nýja fræðigrein þar sem er nýtt orðfæri og öðruvísi vinnubrögð og það þarf tíma til að tileinka sér það. Í svona námi þarf að finna leiðir til þess að viðkomandi geti þróað það með sér af því, eins og ég sagði áður, þá viljum við ekki útskrifa fólk sem segist bara hafa tekið kennsluréttindin. Það þarf að tileinka sér að verða kennari. Það tengist sjálfsmyndinni.“
Kristín segir að lokaniðurstaðan sé að námsmenningin skipti gífurlegu máli. „Námsmenningin þarf að mótast af því að horfa til þekkingar og reynslu nemenda. Jákvæð samskipti skipta miklu máli og að allir séu á jafningjagrunni; þó ég sé sérfræðingur í kennslufræði eru hér jafnvel listamenn á heimsmælikvarða í námi og þar með sérfræðingar í sínu fagi. Við nálgumst öll viðfangsefnið kennslufræði listgreina á jafnréttisgrunni. Það að tileinka sér nýja sjálfsmynd sem listkennari meðfram því að vera listamaður krefst, eins og áður segir, tíma og lenging kennaranámsins hefur því töluvert að segja. Þessi námsmenning sem ég talaði um leggur einnig áherslu á ígrundun í náminu og að finna tíma fyrir samtal vegna þess að hluti af því að þróa nýja sjálfsmynd felst í því að maður verður að fara svolítið inn á við. Það er ekki nóg að hlusta, tala og lesa um eitthvað heldur þarf nemandinn að íhuga hver hann er í þessu samhengi og prófa sig áfram. Það að skrifa dagbók, eins og ég lét nemendur gera, gerir þeim meðal annars kleift að ígrunda markvisst það sem þeir voru að gera og tengja við fyrri reynslu.“
Að fjölga góðum listkennurum
Kristín segir að aðalmarkmiðið með doktorsverkefninu sé að byggja upp og þróa gott nám og mennta fleiri góða listamenn til að verða kennarar. Niðurstöðurnar geti nýst við þróun og uppbyggingu frekara náms á meistara- og doktorsstigi fyrir listamenn. „Ég er listkennari og markmið mitt hefur alltaf verið að efla listirnar inni í menntakerfinu. Fókusinn í doktorsverkefninu er því á það sem ég er að gera hér. Verkefni mitt er að mennta góða kennara og búa til gott nám fyrir listkennara en lokamarkmiðið er að fjölga góðum listkennurum úti í samfélaginu. Ef tæknin á að taka við ákveðnum hlutum sem við manneskjurnar erum að gera í dag þá þurfum við að rækta það sem er tengt mennskunni, sem er meðal annars það að tjá sig í listum. Við þurfum að leggja áherslu á að rækta góðar manneskjur, samkennd og skapandi eiginleika einstaklinga sem geta tekist á við ófyrirséða hluti í framtíðinni. Og við getum notað listirnar til að tjá svo ótrúlega marga hluti sem tækni og vélar geta ekki. Auk þess eru listir vel til þess fallnar að varpa nýju og gagnrýnu ljósi á ýmislegt í samfélaginu og eru þannig mikilvægt tæki til að efla gagnrýna hugsun nemenda.“
Kristín segir að um sé að ræða fyrstu rannsóknina sem gerð er á háskólamenntun listamanna á Íslandi. „Mér finnst það ekki vera spurning að við sem erum stjórnendur innan Listaháskólans eigum að horfa til þess hvað það er sem skiptir máli. Eitt af því sem kemur fram er að það þarf kannski að vinna meira saman milli listgreina. Það er líka þörf fyrir að við opnum kannski á meistaranám þar sem allar listgreinar koma saman í skapandi vinnu; ekki bara í kennslufræði. Það má líka segja að niðurstöður rannsóknarinnar hafi haft áhrif á uppbyggingu nýrrar námsleiðar við listkennsludeild. Það hversu ánægðir nemendur hafa verið með samtal á milli ólíkra greina, samhliða markmiðum okkar að fjölga kennurum sem nýta sér aðferðir lista í námi og kennslu, varð til þess að nú í haust verður í fyrsta sinn boðið upp á kennaranám við deildina fyrir þá sem lokið hafa BA- námi í öðrum greinum en listum. Þeir geta þannig tekið meistaragráðu í kennslufræðum með áherslu á aðferðir lista í skólastarfi.“
Kristín segir að doktorsnámið sé langt ferðalag. „Ég segi eiginlega að doktorsgráða sé gráða í þrautseigju og úthaldi. Það var hins vegar skemmtilegt ferðalag og góð tilfinning að hafa tekið sér tíma og orku til þess að kafa svona vel ofan í viðfangsefnið sem er nátengt vinnu minni. Það er ómetanlegt að mínu mati að hafa kafað svona djúpt; ekki bara praktískt heldur einnig fræðilega, samhliða því að móta starfið. En ég er líka voðalega fegin að vera búin.“
VIÐTALIÐ VIÐ KRISTÍNU VALSDÓTTUR BIRTIST Í SKÓLAVÖRÐUNNI, 1. TBL. 2019.