Sjálfbært menningar- og umhverfismiðað uppeldi í Steinahlíð

Fréttir|8. febrúar 2022

Miðvikudaginn 16. mars kl. 17-18 ætla þeir Bergsteinn Þór Jónsson leikskólastjóri og Lárus Lúðvík Hilmarsson verkefnastjóri útikennslu í Steinahlíð að segja frá frábæru fagstarfi í Steinahlíð. Síðastliðin vetur hefur leikskólinn verið þátttakandi í vest‐norrænu samstarfi. Yfirskrift verkefnisins er: Sjálfbært menningar- og umhverfismiðað uppeldi. Í leikskólanum Steinahlíð hefur grænmetisræktun verið hluti af fagstarfinu um árabil. Með tilkomu Bambahúss verður meiri fjölbreytni í ræktuninni, ræktunartíminn lengist og forræktunin verður auðveldari.

Miðvikudaginn 16. mars kl. 17-18 ætla þeir Bergsteinn Þór Jónsson leikskólastjóri og Lárus Lúðvík Hilmarsson verkefnastjóri útikennslu í Steinahlíð að segja frá frábæru fagstarfi í Steinahlíð.

Leikskólinn Steinahlíð er við Suðurlandsbraut og er sannkölluð náttúruperla í miðri Reykjavík. Í Steinahlíð hefur verið starfræktur leikskóli frá 7. nóvember 1949 og er því einn af elstu leikskólum borgarinnar.

Steinahlíð hefur undanfarin tvö ár verið að þróa aðferðir við vinnu með Barnasáttmálann. Síðastliðin vetur hefur leikskólinn verið þátttakandi í vest‐norrænu samstarfi. Yfirskrift verkefnisins er: Sjálfbært menningar- og umhverfismiðað uppeldi.

Í leikskólanum Steinahlíð hefur grænmetisræktun verið hluti af fagstarfinu um árabil. Með tilkomu Bambahúss verður meiri fjölbreytni í ræktuninni, ræktunartíminn lengist og forræktunin verður auðveldari. Börnin taka virkan þátt í að setja niður grænmeti og fleira í gróðurhúsinu.

Fundurinn fer fram á slóðinni: https:// meet.google.com/hxc-yzsd-gbh

Allir velkomnir!