Simon Cramer býður sig fram til formanns FF

Fréttir|20. desember 2025
SCL2

Simon er dönskukennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla.

Simon Cramer Larsen hefur tilkynnt uppstillingarnefnd Félags framhaldsskólakennara (FF) um framboð sitt til formennsku í FF. Simon tilkynnti nefndinni þetta bréflega undir lok dags í gær. 

Hann hefur verið aðalfulltrúi í stjórn FF frá árinu 2022 og gegnt embætti formanns skólamálanefndar FF frá árinu 2019. 

Simon er dönskukennari í Fjölbrautaskólanum við Ármúla (FÁ) og jafnframt formaður Kennarafélags FÁ.