Sigurður verður áfram formaður FSL

Sigurður Sigurjónsson hefur hlotið endurkjör og verður áfram formaður Félags stjórnenda leikskóla næstu fjögur árin.
Sigurður Sigurjónsson er sjálfkjörinn í embætti formanns Félags stjórnenda leikskóla (FSL) á kjörtímabilinu 2026 til 2030. Frestur til að bjóða sig fram til formanns Félags stjórnenda leikskóla (FSL) rann út klukkan tólf á hádegi í dag, fimmtudaginn 8. janúar.
Sigurður hefur gegnt embættinu síðan 2018. Fjögur árin þar á undan var hann varaformaður FSL.
Enn er hægt að bjóða sig fram í stjórn félagsins og í trúnaðarstörf; kjörstjórn, samninganefnd og framboðsnefnd. Tilkynningar um framboð skulu berast á netfangið fslframbod@ki.is. Frestur til að bjóða sig fram í stjórn FSL rennur út klukkan 12:00 á hádegi, fimmtudaginn 15. janúar. Stefnt er á að rafrænar kosningar til stjórnar fari fram dagana 9. til 11. febrúar 2026. Kosið er í trúnaðarstörf á aðalfundi FSL.