Sigurður Sigurjónsson tók við formennsku í Félagi stjórnenda leikskóla

Fréttir|18. maí 2018

Ný stjórn tók einnig við en hana skipa Halldóra Guðmundsdóttir, Hulda Jóhannsdóttir, Jónína Hauksdóttir og Sigrún Hulda Jónsdóttir. Varamenn eru þær Gyða Guðmundsdóttir, Lena Sólborg Valgarðsdóttir og Vigdís Guðmundsdóttir.

Aðalfundur Félags stjórnenda leikskóla var haldinn 17. maí á Selfossi. Sigurður Sigurjónsson tók við formennsku í félaginu af Ingibjörgu Kristleifsdóttur, en hún hafði gegnt formennsku frá stofnun félagsins árið 2010. Ný stjórn tók einnig við en hana skipa Halldóra Guðmundsdóttir, Hulda Jóhannsdóttir, Jónína Hauksdóttir og Sigrún Hulda Jónsdóttir. Varamenn eru þær Gyða Guðmundsdóttir, Lena Sólborg Valgarðsdóttir og Vigdís Guðmundsdóttir. 

Á aðalfundinum var ályktað um velferð og líðan barna í leikskólum en síðustu ár hefur dvalartími barna í leikskólum aukist verulega. Huga þarf vel að því námsumhverfi sem leikskólar bjóða börnum. Einnig skorar aðalfundurinn á sveitarfélög að sjá til þess að laun stjórnenda og sérfræðinga á skólaskrifstofum endurspegli ábyrgð og skyldur þeirra í starfi. 

Á aðalfundinum var kosið í nefndir í vegum félagsins. Úrslit kosninga:

Samninganefnd
Vigdís Guðmundsdóttir
Jórunn Eydís Jóhannesdóttir
Ásta María Björnsdóttir
Þórunn Gyða Björnsdóttir, 1. varamaður
Sigríður Herdís Pálsdóttir, 2. varamaður

Skólamálanefnd
Guðrún Lára Magnúsdóttir
Lena Sólborg Valgarðsdóttir
Jakobína Elín Áskelsdóttir
Edda Valsdóttir
Anna R. Árnadóttir, 1. varamaður
Vigdís Guðmundsdóttir, 2. varamaður

Kjörstjórn
Brynhildur Björg Jónsdóttir
Katrín Lilja Hraunfjörð
Valdís Sigurðardóttir

Framboðsnefnd
Katrín Lilja Hraunfjörð

 

Sigurður Sigurjónsson, formaður FSL