Sigrún Grendal verður áfram formaður FT
Fréttir|9. febrúar 2026

Núverandi formaður FT var ein í kjöri til formanns á næsta kjörtímabili.
Sigrún Grendal Jóhannesdóttir verður formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum á kjörtímabilinu 2026 til 2030.
Þetta varð ljóst klukkan tólf í dag þegar frestur til formannsframboðs rann út. Sigún var ein í kjöri og er því sjálfkjörin.