Sigríður Sveinsdóttir kvödd hinstu kveðju

Fréttir|3. maí 2021

Útförin verður gerð frá Seljakirkju klukkan 13.

Sigríður Sveinsdóttir, fyrrverandi formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, verður jarðsungin í dag. Sigríður lést sunnudaginn 18. apríl síðastliðinn.

Sigríður gegndi formennsku í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum í ellefu ár, frá 1988 til 1999. Þegar Sigríður lét af embætti formanns hóf hún störf hjá Kennarasambandi Íslands. Meðal verkefna Sigríðar hjá KÍ var að halda utan um félagskrá KÍ og aðildarfélaga. Sigríður lét af störfum hjá KÍ árið 2012.

Sigríður var gerð að heiðursfélaga FT á afmælisársfundi félagsins 24. nóvember 2012. Á heiðursskjali sem Sigríði var afhent við þetta tilefni sagði að hún hefði sinnt formennsku í FT af alúð og hugsjón og framlag hennar til stéttar tónlistarkennara væri stórt. „Hún leiddi félagið farsællega þar sem áhugi á faginu, réttsýni og umhyggja fyrir félagsmönnum var í fyrirrúmi. Sigga gaf sig af lífi og sál í starfið og var persónuleg þjónusta hennar einkenni,“ er jafnframt skrifað á heiðursskjalið.

Samstarfsfólk Sigríðar hjá KÍ minnist hennar með hlýju og sendir dætrum hennar og og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Sigríðar Sveinsdóttur.