Siglingatækin biluð og íshröngl í samningaþokunni

Fréttir|4. mars 2014

„Ég þarf að takast á við tæknibreytingar og breytingar á viðhorfum nemenda. Ræða orsök og afleiðingar, gagnrýna hugsun og loks kenna þeim sem taka við af mér, að takast á við breytingar, gera betur, fóstra betur og skapa betra samfélag,“ skrifar Benedikt Barðason, áfangastjóri í VMA, í nýjum vikupósti á vef FF.

Benedikt segist hafa notið þess að vera kennari og löngum hafi hann staðið vaktir í brúnni. Nú séu sum siglingatækin hins vegar biluð og skipið á hægri ferð. „Kjarasamningur er sætt eða sáttmáli. Hann er meira en launatafla. Hann er forsenda þess að hægt sé að halda áfram,“ skrifar Benedikt.