Síðasti séns til að sækja um hvatningastyrk

Fréttir|26. júní 2024

Síðasta tækifæri til að sækja um hvatningarstyrk til kennaranema er 1. nóvember 2024.

Fimm ára átaksverkefni stjórnvalda um fjölgun kennara, sem hófst vorið 2019, lýkur formlega haustið 2024. Síðasta tækifæri til að sækja um hvatningarstyrk til kennaranema er því 1. nóvember 2024.

Skilyrði styrkveitinga

  • Nemendur á lokaári meistaranáms til kennsluréttinda og nemendur í kennslufræði ætlaðri iðnmeisturum og þeim sem lokið hafa löggildu starfsréttindaprófi skólaárið 2023-24 geta sótt um hvatningarstyrk vegna náms á vor- og sumarönn 2024 og vegna brautskráninga í júní og október 2024. Nemandi sækir um hvatningarstyrk til þess háskóla sem hann stundar nám við.
  • Kennaranemi sem leggur stund á 120 ECTS eininga meistaranám til kennsluréttinda og hefur ekki þegar leyfisbréf til kennslu getur sótt um hvatningarstyrk sem nemur allt að 800.000 kr. Fyrri helmingurinn greiðist þegar staðfesting liggur fyrir að nemandi hafi lokið 90 ECTS einingum á meistarastigi og seinni helmingurinn þegar nemandi hefur brautskráðst með leyfisbréf til kennslu.
  • Kennaranemi sem þegar hefur lokið meistaraprófi í kennslugrein og innritast haustið 2020 eða síðar í 60 ECTS eininga meistaranám til kennsluréttinda getur sótt um hvatningarstyrk sem nemur allt að 400.000 kr. Styrkurinn greiðist út í einu lagi þegar nemandi hefur brautskráðst með leyfisbréf til kennslu. Réttur til að sækja um styrk fellur niður ef kennaranemi útskrifast ekki innan 12 mánaða frá innritun í námið.
  • Verðandi starfsmenntakennari sem innritast haustið 2021 eða síðar í 60 ECTS eininga grunndiplómu í kennslufræði sem er sérstaklega ætlað iðnmeisturum og þeim sem þegar hafa lokið löggildu starfsréttindaprófi getur sótt um hvatningarstyrk sem nemur allt að 400.000 kr. Styrkurinn greiðist út í einu lagi þegar nemandi hefur brautskráðst með leyfisbréf til kennslu. Réttur til að sækja um styrk fellur niður ef kennaranemi útskrifast ekki innan 24 mánaða frá innritun í námið og í samræmi við skipulag námsins.


Hvatningarstyrkur til starfandi kennara til náms í starfstengdri leiðsögn

Nám í starfstengdri leiðsögn tekur þrjú misseri og fer fram við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Námið er sniðið að þörfum starfandi kennara.

  • Nemendur á lokamisseri náms í starfstengdri leiðsögn vorið 2024 geta sótt um hvatningarstyrk vegna brautskráningar í júní 2024. Nemandi sækir um hvatningarstyrk til þess háskóla sem hann stundar nám við.
  • Starfandi kennari sem leggur stund á viðbótarnám á meistarastigi í starfstengdri leiðsögn getur sótt um hvatningarstyrk sem nemur allt að 150.000 kr. Styrkurinn er tvískiptur, fyrri hluti styrksins er greiddur út þegar staðfesting liggur fyrir að viðkomandi hafi staðist nám á fyrsta misseri og seinni hlutinn þegar hann hefur lokið námi og brautskráðst.

Með styrkumsókn skal fylgja staðfesting skólastjórnanda á að umsækjandi sé starfandi kennari við viðkomandi skóla, meðmæli og ástæður þess að viðkomandi kennari sérhæfi sig í starfstengdri leiðsögn. Réttur til að sækja um seinni hluta styrks fellur niður ef kennari útskrifast ekki innan 24 mánaða frá innritun í námið.

Sjá nánar um hvatningastyrk til kennaranema.