SÍ lýsir yfir fullum stuðningi við tónlistarskólakennara
Skólastjórafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu tónlistarskólakennara í FT og skorar um leið á samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga að ganga nú þegar til samninga við tónlistarkennara og stjórnendur tónlistarskóla.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem var samþykkt á aukaaðalfundi Skólastjórafélags Íslands, sem fram fór á Selfossi 11. október síðastlðinn.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Aukaaðalfundur Skólastjórafélags Íslands, haldinn á Selfossi 11. október 2014, lýsir yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu tónlistarkennara í Félagi tónlistarskólakennara. Mikilvægt er að kjör allra kennara og skólastjórnenda séu sambærileg og jafnverðmæt óháð skólagerð. Fundurinn skorar á samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga að ganga nú þegar til samninga við tónlistarskólakennara og stjórnendur tónlistarskóla svo afstýra megi yfirvofandi verkfalli sem getur haft veruleg áhrif á tónlistarkennslu í landinu til lengri tíma.“