Sex í framboði til varaformanns KÍ
Fréttir|22. nóvember 2017

Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram dagana 7. til 13. desember 2017.
Sex bjóða sig fram til varaformanns Kennarasambands Íslands en framboðsfrestur rann út á miðnætti í gær, þriðjudaginn 21. nóvember. Rafræn allsherjaratkvæðagreiðsla fer fram dagana 7. til 13. desember 2017. Frambjóðendurnir sex munu á næstunni kynna sig og stefnumál sín.
Eftirtalin eru í framboði:
- Anna María Gunnarsdóttir, framhaldsskólakennari í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
- Ásthildur Lóa Þórsdóttir, grunnskólakennari í Öldutúnsskóla
- Halldóra Guðmundsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Drafnarsteini
- Heimir Björnsson, framhaldsskólakennari í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði
- Simon Cramer, framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja
- Þórunn Sif Böðvarsdóttir, grunnskólakennari við Laugalækjarskóla
Framboðsfundur með öllum frambjóðendum verður haldinn í Gerðubergi að kvöldi mánudagsins 4. desember næstkomandi.
Nýr varaformaður KÍ tekur við embætti á 7. þingi Kennarasambands Íslands sem fram fer í apríl á næsta ári.