Sérkennarar krefjast verulegra kjarabóta

FÍS skora á samninganefndir FG og SNS að beita sér fyrir verulegum kjarabótum.
Félagsmenn Félags íslenskra sérkennara (FÍS) skora á samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara að beita sér fyrir verulegum kjarabótum sérkennara, varðandi vinnuálag og launakjör. Þannig hljóðar upphaf ályktunar sem var samþykkt á aðalfundi FÍS 21. nóvember síðastliðinn.
Þá er því mótmælt í ályktuninni að sérkennarar hafi dregist aftur úr í launakjörum miðað við annað sérfræðimenntað fagfólk í skólum undanfarin ár – og krefst félagið leiðréttingar á því. „Minnt er á að áður fyrr hafi laun sérkennara verið þau sömu og laun náms- og starfsráðgjafa en nú eru laun þeirra 2 launaflokkum hærri en sérkennara. Þá voru laun sérkennara hærri en laun umsjónarkennara en eru nú þau sömu. Einnig hefur kennsluskylda sérkennara verið aukin og því hefur svigrúm til að sinna öðrum þáttum starfsins, svo sem greiningum, ráðgjöf, skýrslugerð og einstaklingsmiðaðri námsefnisgerð, minnkað með tilheyrandi aukaálagi,“ segir orðrétt í ályktuninni.
Fréttir af biðlistum eftir sérfræðiþjónustu fyrir börn með sérþarfir og slæmri líðan barna í skólum hafa verið áberandi að undanförnu og eru að mati FÍS áhyggjuefni. „Því skiptir sköpum að hafa menntaða sérkennara til að sinna þeim málum innan skólanna og vera í samstarfi við aðrar fagstéttir utan skólans til að fylgja eftir besta hugsanlega stuðningi fyrir börn sem þurfa á því að halda,“ segir í ályktun FÍS.