Sérhæfing fyrir reynda kennara
Sérhæfing í meistaranámi – ætluð kennurum með starfsreynslu – verður í boði á Menntavísindasviði HÍ og á Hug- og félagsvísindasviði HA næsta haust. Markmið sérhæfingarinnar er að efla hæfni kennara og skóla til að annast starfstengda leiðsögn á sviði uppeldis og menntunar þar sem stefnt er að starfshæfni og fagmennsku einstaklinga og hópa. Námið er ætlað kennurum með starfsreynslu og er krafist minnst tveggja ára kennslureynslu.
Undirbúningur og framkvæmd verkefnisins er samstarfsverkefni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og kennaradeildar á hug- og félagsvísindasviði Háskólans á Akureyri. Við þessar stofnanir hefur á undanförnum árum verið boðið upp á námskeið um starfstengda leiðsögn í meistaranámi. Í báðum háskólunum er vilji fyrir því að efla þetta nám þannig að meistaranemar geti sérhæft sig á þessu sviði.
Með því að samnýta sérfræðiþekkingu og reynslu háskólakennara í báðum stofnunum er unnt að móta heildstætt nám fyrir meistaranema og bjóða reyndum kennurum upp á slíka sérhæfingu.
Gefið hefur verið út kynningarrit um námið.