Sendiherra, tæknitröll og íseldfjöll á skrifstofu KÍ

Fréttir|25. júní 2026
Arnbjörg Stefánsdóttir, dr. Bryony Mathews og Mjöll Matthíasdóttir

Formenn FG og SÍ tóku á móti sendiherra Bretlands, dr. Bryony Mathew, í morgun. 

Dr. Bryony Mathew, sendiherra Bretlands, kom færandi hendi á skrifstofu Kennarasambandsins í morgun, þegar hún gaf það sem eftir er af upplagi bókarinnar Tæknitröll og íseldfjöll. Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, og Arnbjörg Stefánsdóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands, tóku á móti sendiherranum og veittu bókagjöfinni viðtöku. Dr. Bryony kveður Ísland í næsta mánuði eftir fimm ára dvöl hérlendis. 

Mörg þekkja vafalaust til bókarinnar en í henni er að finna heim sem er fullur af spennandi, ólíkum og fjölbreyttum framtíðarstörfum fyrir börn. Börn eru, í sögunni, hvött til að láta drauma sína rætast, rækta hæfileika sína og vera óhrædd við að takast á við nýja hluti. Jafnframt er lögð áhersla á fjölbreytileika, jafnrétti og þá staðreynd að hvert barn hafi sína styrkleika og geti lagt sitt af mörkum á sinn einstaka hátt. 

Bryony gaf bókina út árið 2022 og hefur hún síðan þá farið víða um land til þess að kynna bókina og færa grunnskólum hana til eignar. 

Bókin hefur ekki verið til sölu. Prentuð eintök eru ekki mörg eftir en hægt er að nálgast bókina á vef Miðstöðvar menntunar og þjónustu (MMS). Þá hefur verið gefið út skemmtilegt borðspil í tengslum við bókina. Þar er jafnframt að finna leiðbeiningar fyrir kennara. 

Vellíðunarhönnuður, snjallferðamálafræðingur, smástirnaþjarkastjóri, fjarskurðlæknir, hafverndari og lýðheilsuverndari eru meðal nýstárlegra starfsheita í bókinni.

Bókin sjálf og efni fyrir kennara

Kennsluleiðbeiningar voru gefnar út af breska sendiráðinu í samstarfi við MMS. Þær eru ætlaðar börnum á aldrinum 6–12 ára og innihalda meðal annars:

  • tengingu við hæfniviðmið Aðalnámskrár grunnskóla,
  • markmið kennslunnar,
  • tillögur að kennslustundum,
  • verkefni um fjölbreytileika, jafnrétti og framtíðarstörf,
  • jafningjafræðslu og umræðuverkefni fyrir nemendur.


Mikilvægir hlekkir