Senda norskum kennurum baráttukveðjur

Fréttir|26. ágúst 2014

Norrænu kennarasamtökin NLS lýstu í dag yfir stuðningi við þá tæplega 8.000 norsku kennara sem nú eru í verkfalli í tengslum við yfirstandandi kjaraviðræður. Þar er að miklu leyti deilt um vinnutíma. Í stuðningsyfirlýsingu NLS segir að afar brýnt sé að kennararnir nái að verja faglega stöðu sína og koma í veg fyrir breytingar sem meðal annars muni leiða til þess að norskir kennarar verji sífellt minni tíma með hverjum nemanda.

Ítarefni: