Semja strax, semja strax, semja strax, semja strax!

Ríflega þúsund kennarar létu vel í sér heyra við Alþingi í gærkvöld, á sama tíma og forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína. Krafan er einföld, samninga strax!
Ríflega þúsund kennarar tóku þátt í baráttugöngu og samstöðufundi á Austurvelli í gærkvöld. Stemningin var stórkostleg og ljóst að engan bilbug er að finna á kennurum í baráttunni fyrir bættum kjörum.
Kennarafélag Reykjavíkur stóð fyrir viðburðinum en félagsfólk úr öllum aðildarfélögum KÍ tók þátt. Viðræðunefnd KÍ ásamt formanni og varaformanni KÍ voru í broddi fylkingar þegar gengið var frá Lækjargötu og yfir á Austurvöll.
Áfram kennarar! Semja strax! Við erum búin að fá nóg!
Svo hljómuðu slagorðin sem ómuðu á Austurvelli en á sama tíma var forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, að flytja stefnuræðu sína. Köll kennara heyrðust, að sögn, vel inni í þingsalnum.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, ávarpaði samkomuna og sagði að kraftur og samstaða viðstaddra væri viðræðunefndinni afar mikilvæg. Minnti formaður á að baráttan hefur staðið í fimm mánuði og óvíst hvenær samningum verður landað.
Skoða myndir úr kjarabaráttunni