Seigla nemenda aðdáunarverð

Viðar Hrafn Steingrímsson, dönskukennari í Flensborg, segir frá nýjum veruleika sem blasti við framhaldsskólakennurum 15. mars síðastliðinn.
„Daglega lífið í kennslu þessa dagana er auðvitað mjög breytt frá því sem var," segir Viðar Hrafn Steingrímsson, framhaldsskólakennari í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.
Viðar þurfti, eins og aðrir framhaldsskólakennarar, að skipta algjörlega um gír um miðjan mars en þá var öllum framhaldsskólum landsins lokað vegna COVID-19. Eftir það fór öll kennsla fram á netinu; með beinum útsendingum, fjarfundum og ýmsum öðrum rafrænum hætti.
„Mér finnst seiglan í langflestum nemendum vera mjög aðdáunarverð," segir Viðar Hrafn Steingrímsson en hann er einn níu viðmælenda í myndbandaröð KÍ þar sem fjallað er um skólastarf í skugga veirufaraldurs á öllum skólastigum. Viðtalið við Viðar er frumsýnt í dag.
Myndbönd KÍ
Við mælum líka með áhorfi á myndböndin sem hafa verið birt. Þau segja mikilvæga sögu um skólastarfið undanfarna mánuði, í ástandi sem fáa eða nokkurn óraði fyrir.
- Aron Örn Óskarsson, deildarstjóri í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
- Gróa Sigurðardóttir, deildarstjóri í leikskólanum Hofi
- Sandra Jónasdóttir, grunnskólakennari í Hofsstaðaskóla
Á morgun verður fimmta myndbandið birt og þar lýsir Ásta Kristín Svavarsdóttir leikskólastjóri hvernig starfið í leikskólanum breyttist með tilkomu fjöldatakmarkana.