Segja vegið að kennslu raungreina
Samlíf – samtök líffræðikennara segja að vegið hafi verið að kennslu raungreina (líffræði, efnafræði, eðlisfræði og jarðfræði) í íslenskum framhaldsskólum undanfarin ár; bæði með fækkun eininga til stúdentsprófs og fjölgun nemenda í námshópum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem samtökin sendu mennta- og menningarmálaráðherra í gær.
Samlíf hvetur menntamálaráðherra til að standa vörð um raungreinakennslu með því að tryggja hlut raungreina í nýju námsskránni og vinnumati framhaldsskólakennara. „Stjórn Samlífs, fyrir félaga í samtökum líffræðikennara hvetur enn ráðherra til að tala máli raungreina í íslensku skólakerfi. Á tyllidögum er talað um að verði að efla raungreinamenntun á öllum skólastigum. Hunsun og vöntun á svörum undirstrikar ef til vill að þegar á reynir þá njóta raungreinar, raungreinakennsla og raungreinakennarar ekki sannmælis miðað við annan bóknám," segir meðal annars í ályktuninni.