Segja brotið á rétti barna með langvarandi aðgerðaleysi

Fréttir|10. nóvember 2016

SAMFOK, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, lýsa þungum áhyggjum af stöðunni í grunnskólum borgarinnar. Samtökin hafa sent frá sér ályktun þar sem þau skora á stjórnvöld að taka ábyrgð á framkvæmd eigin skólastefnu, skóla án aðgreiningar og að þau meti stjórnendur, kennara og annað starfsfólk skólanna að verðleikum. 

„Auðsýnt er að með langvarandi aðgerðaleysi sínu eru stjórnvöld að brjóta á rétti barna og standa í vegi fyrir jöfnum rétti þeirra til náms og þroska. Rekstur grunnskólanna er á ábyrgð sveitarfélaganna og ef þeim finnst rangt gefið þá er það einnig á þeirra ábyrgð að krefja ríkið um nýja tekjustofna. Samtökin fagna boðaðri sókn í skólamálum sem kynnt var í haust en meira þarf til," segir á ályktun SAMFOKs. 

Þá segir að enn eigi eftir að skýra verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og semja um önnur málefni barna á sviði velferðarþjónustu innan skólakerfisins. Má þar nefna sérfræðiþjónustu ýmiss konar, til dæmis við börn sem glíma við fjölþættan vanda og börn með ADHD. „Skólakerfið er að bregðast þessum börnum og fjölskyldum þeirra dagsdaglega. Það er brýnt að sveitarfélögin knýi á um að lokið verði að semja við ríkið um þessi og önnur grá svæði í skólakerfinu og velferðarþjónustu barna," segir jafnframt í ályktuninni. 

Ályktun SAMFOK.