Segir mamma þín það?

Guðjón Ingi Eiríksson kennari sendi nýverið frá sér bókina Segir mamma þín það? Bókin hefur að geyma gamansögur úr íslenska skólakerfinu. Ekki þarf að lesa lengi í bókinni til að sjá að margt skemmtilegt á sér stað í skólum landsins.
Vafalaust þekkja margir til Guðjóns Inga en hann hefur gefið út fjöldann allan af bókum; má þar nefna Laggó! – gamansögur af sjómönnum, Íslenskar gamansögur, Jólasveinana í Esjunni og Reimleika – íslenskar draugasögur. Guðjón Ingi var fús að deila nokkrum skemmtisögum með lesendum Skólavörðunnar. Njótið vel.
Sóttdauði og Valhöll
Það var fyrir Íslandssöguprófið í 5. bekk, haustið 2003. Sam viskusöm og metnaðargjörn móðir, sem lét okkur þessa sögu í té, var að hlýða syni sínum yfir og sagði þá meðal annars við piltinn: „Fornmenn trúðu því að þeir sem væru drepnir í bardaga færu til Valhallar, en hvað átti að verða um þá sem urðu sóttdauðir?“ Strákurinn hugsaði sig eilítið um en síðan kom: „Þeir voru sótthreinsaðir!“
Fengitími
Þegar Ingveldur Ragnarsdóttir kenndi við 5. bekk í Grunnskóla Hellissands spurði hún eitt sinn á prófi í náttúrufræði: „Hvað gerist á fengitíman um.“ Eitt svarið sem hún fékk sló öllum öðrum við. Það var: „Þá hafa bændur mök.“

Þegar englarnir koma of seint að sækja mann þá verður maður draugur
Nokkur gullkorn úr leikskólum
„Þegar englarnir koma of seint að sækja mann þá verður maður draugur.“
„Hvaða staf á afi þinn?“ „Hann á bara kross af því að hann er svo gamall.“
„Ég stækka svo mikið að fötin eru farin að minnka á mig.“
„Sá hleypur hratt sem síðast hlær.“
„Fyrst fær maður barnatennur, svo fullorðinstennur og þegar maður missir þær þá fær maður franskar.“
Þversagnir Flensborgara
Hugtakið þversögn hafði mismunandi merkingu hjá nemendunum í Flensborgar skólanum og fékk meðal annars þessar „útskýringar“ á íslenskuprófi:
- Þversögn er sögn sem er þver í sínum málum.
- Það er þegar ein sögn fer þvert á aðra.
- Þversögn er sögn fyrir þvert fólk sem hugsar bara um sjálft sig.
- Það er sögn sem liggur þvert niður textann.
