Segir málflutning ráðuneytis með ólíkindum

Fréttir|28. mars 2026
Borgartun 33 (1)

Formaður Kennarasambandsins kveðst ekki trúa öðru en ráðuneyti menntamála leiðrétti rangfærslur um fjölda kennsludaga í grunnskólum.

„Allir foreldrar vita það að skólaár á Íslandi er 180 dagar. Hluti af þeim eru nýttir sem uppbrotsdagar og nýttir í alls konar nám. Það er mjög skýrt að kennsludagar eru 180 og það er  sambærilegt á öllum hinum Norðurlöndunum,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 

Fréttin fjallaði um minnisblað Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, þar sem því er haldið fram að kennsludagar í íslenskum grunnskólum séu færri en tíðkast í löndunum í kringum okkur, eða 170. 

Hluti daganna 180 eru þemadagar og ýmiss konar óhefðbundnir kennsludagar. En kennsludagar eru þeir og nemendur eru skólaskyldir þá daga, að sögn Magnúsar Þórs. Undirbúningsdagar, frístund og dagar án mætingarskyldu eru ekki taldir með. Svipað sé uppi á teningnum á hinum Norðurlöndunum, segir í frétt Bylgjunnar sem greint er frá á Vísi. 

Magnús segir minnisblaðið og færslur menntamálaráðuneytis á samfélagsmiðlum með hreinum ólíkindum. Málflutningur af hálfu ráðuneytisins tali ekki inn í raunveruleika sem kennarar, foreldrar og nemendur kannist við. Þá bendir Magnús á að kjaraviðræður kennara við ríki og sveitarfélög, sem staðið hafi yfir frá þvi í haust og þetta útspil Ingu Sæland sé ekki til þess fallið að auka traust við samningaborðið. 

„Ég treysti því að þessi umræða um skóladaga verði leiðrétt því það er ekki fallegt að setja þetta fram með þessum hætti því að það er einfaldlega ekki rétt. Það eru 180 kennsludagar í íslenskum grunnskólum og það er engin ástæða til að láta eins og að það sé með öðrum hætti,“ sagði Magnús Þór í fyrrgreindu viðtali. 

Lesa fréttina á Vísi.