Science on Stage - tækifæri fyrir kennara

Evrópusamstarf fyrir alla kennara í raun- og tæknigreinum innan menntastofnana.
Félag raungreinakennara kynnir Science on Stage, sem er Evrópusamstarf fyrir alla kennara í raun- og tæknigreinum innan menntastofnana. Science on Stage er vettvangur þar sem kennarar geta skipst á hugmyndum um lifandi og skapandi kennslustundir og þannig aukið áhuga nemenda á vísindum og tækni. www.science-on-stage.eu
Annað hvert ár er haldin hátíð á vegum Science on Stage, Europe. Á þessu ári, 2019, verður hátíðin 31. október – 3. nóvember í Cascais, Portúgal. Þá munu raungreinakennarar hittast og sýna hver öðrum tilraunir í kennslu raungreina í þar til gerðum sýnibásum t.d. með því að vera með einfaldar verklegar æfingar, sýnikennslu eða verkfæri/búnað sem þeir hafa þróað til kennslu. Hér er ekki um að ræða uppistand eða háþróaða tækni heldur er markmiðið að finna eitthvað sem virkar vel til kennslu og að kennarar miðli sinni reynslu sín á milli. Um 450 kennarar grunn- og framhaldsskóla frá a.m.k. 33 löndum taka þátt í þessari sannkölluðu vísindaveislu.
Samkeppni um þátttöku á Science on Stage hátíðinni
Félag raungreinakennara býður kennurum að taka þátt í samkeppni um að taka þátt í vísindaveislu Science on Stage með verklegri æfingu (tilraun), sýnikennslu eða verkfærum/búnaði til kennslu í raungreinum á framhaldsskólastigi. Sérstök Science on Stage dómnefnd velur fimm verkefni sem fara utan fyrir hönd raungreinakennara á Íslandi og taka þátt í hátíðinni. Gisting og uppihald meðan á hátíðinni stendur er þátttakendum að kostnaðarlausu. Hægt er að sækja um styrk fyrir ferðakostnaði hjá endurmenntunarsjóðum KÍ.
Framlögin/verkefnin á hátíðinni 2019 eiga að falla að einhverju af eftirfarandi:
❖ Science in Early Years: Vísindi og raungreinar í ljósi sögunnar
❖ Digital Literacy and Science Education: Læsi í stafrænum heimi vísindanna
❖ Science Education for a Sustainable Development: Kennsla raungreina með sjálfbæra þróun að leiðarljósi
❖ Astronomy and Space Exploration in Science Education: Stjörnufræði og geimkönnun í raungreinakennslu
❖ Low-Cost and Recycled Science: Sparnaður og endurvinnsla í vísindum
Verðlaun fyrir bestu verkefnin/tilraunirnar: Þátttaka í Science on Stage-vísindaveislu 2019, gisting, kaffi og matur innifalin meðan á hátíðinni stendur.
Frestur til að skila inn framlagi/erindi/verkefni er 1. mars 2019.
Tilkynning um vinningshafa verður gefin út í lok mars 2019.
Við leitum eftir:
● Hvetjandi og áhugavekjandi framlögum innan raungreina
● Framlögum sem stuðla að árangursríkara námi
● Skapandi framlögum
● Einfaldri uppsetningu
Við vonumst eftir góðum viðbrögðum. Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við Melkorku á melkorkam@msund.is
Stjórn Félags raungreinakennara