Sautján atriði sem skipta máli

„Kennarar verða að leiða viðbrögð skóla við Covid-19,“ segir hinn virti prófessor og fræðimaður Andy Hargreaves í nýrri grein þar sem hann tekur saman 17 atriði sem skipta máli í skólahaldi næstu mánuði.
Kennarar, skólastjórnendur og starfsfólk skólanna er að gera ótrúlega hluti nú þegar heimurinn berst við Covid-19 faraldurinn. Kennarar eru hinar ósýnilegu hetjur sem styðja við heilbrigðisþjónustuna og finna upp nýjar leiðir til að mennta börn og ungmenni. Kennarar vinna þrekvirki við krefjandi aðstæður á degi hverjum.
Á þessum nótum hefst grein eftir Andy Hargreaves, prófessor og forseta Atlantic Rim Collaboratory sem birt er á vef TES.
Hargreaves hefur tekið saman lista yfir sautján atriði sem hann telur vert að huga að, ekki síst fyrir skólastjórnendur og menntayfirvöld.
Hann fjallar um samskipti við heimilin og hversu mikilvægt er að halda börnum virkum þótt ekki sé unnið samkvæmt námskrá. Þá leggur hann áherslu á að viðkvæmum hópum nemenda sé sinnt sérstaklega.
Skólaárið er ekki búið, tveir mánuðir eftir víðast hvar. Hargreaves segir álag á kennara mikið og þeir verði að fá viðeigandi stuðning og ráðgjöf.
Margt fleira er að finna í yfirliti Hargreaves og vafalaust þekkja kennarar og skólastjórnendur margar hugmyndir sem eru nefndar en að sama skapi gæti verið að finna atriði sem eru nýtileg og forvitnileg.