Sandra Hlín Guðmundsdóttir er félaginn

Fréttir|12. janúar 2024

„Inn á milli koma stundir þar sem nemendur vinna sigra, stóra og smáa og deila því með mér, sem er alltaf gott í hjartað,“ segir Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, í nýjasta tölublaði Skólavörðunnar

Félaginn

Nafn: Sandra Hlín Guðmundsdóttir
Skóli: Borgarholtsskóli
Starf: Náms- og starfsráðgjafi

Ég er námsráðgjafi vegna þess að... Mér finnst gaman að vinna með fólki og sérstaklega ungu fólki. Ég vil hjálpa þeim að ná markmiðum sínum, sjá draumana rætast og styðja við þau í námi.

Besta stund vikunnar er... Ætli það sé ekki seinniparts föstudagskaffið þar sem við hittumst nokkur og fáum okkur kaffibolla og setjumst í nuddstólana sem eru á kaffistofu starfsfólks. Inn á milli koma svo stundir þar sem nemendur vinna sigra, stóra og smáa og deila því með mér, sem er alltaf gott í hjartað.

Þessu myndi ég vilja breyta... Ég myndi vilja setja reglur um hámarksfjölda nemenda á hvern og einn náms- og starfsráðgjafa. Þannig gætum við þjónustað nemendur enn betur, stutt betur við þau í gegnum námið og fylgt eftir málum í stað þess að vera allt of mikið í því að slökkva elda.