Samtök sjálfstæðra skóla og Sólstafir samþykkja kjarasamning

Fréttir|14. september 2020

Niðurstaða í tvennum kosningum um nýjan kjarasamning FL liggur fyrir.

Samtök sjálfstæðra skóla (SSSK) hafa samþykkt nýjan kjarasamning við Kennarasamband Íslands, vegna Félags leikskólakennara. Skrifað var undir samninginn 3. september síðastliðinn. 

Atkvæðagreiðsla um samninginn stóð yfir dagana 9. til 14. september 2020.

Niðurstaðan var svohljóðandi: 

  • Á kjörskrá voru 247 
  • Atkvæði greiddu 70 eða 28,34%
  • Já sögðu 66 eða 94,29%
  • Nei sögðu 4 eða 5,71%
  • Auðir seðlar voru engir

 

Sólstafir samþykkja

Þá hafa félagsmenn FL sem starfa hjá Waldorfleikskólanum Sólstöfum samþykkt kjarasamning við Kennarasamband Íslands, vegna Félags leikskólakennara. Skrifað var undir samninginn 28. ágúst síðastliðinn. 

Atkvæðagreiðsla um samninginn stóð yfir dagana 9. til 14. september 2020. 

Niðurstaðan var svohljóðandi: 

  • Á kjörskrá voru 8
  • Atkvæði greiddu 3 eða 37,50%
  • Já sögðu 3 eða 100%
  • Nei sögðu 0 eða 0%
  • Auðir seðlar voru engir

 

Atkvæðagreiðslan var rafræn í báðum tilvikum.