Samþykktar breytingar hjá Brú lífeyrissjóði

Fréttir|14. maí 2024

Stjórn Brúar lífeyrissjóðs gerði á síðasta ári breytingar á samþykktum sjóðsins er varða réttindi í A og V deildum, til að tryggja að lífeyrisréttindi sem sjóðfélagar ávinna sér yfir starfsævina dugi til greiðslu ævilangs lífeyris. Um breytingarnar er fjallað í aðsendri grein í Skólavörðunni frá BRÚ lífeyrissjóði.

Ástæðan fyrir breytingunum er fyrst og fremst nýtt reiknilíkan Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga á lífslíkum sem tók gildi í árslok 2022. Í því líkani er gert ráð fyrir að lífaldur haldi áfram að hækka, sem hafði þau áhrif að lífeyrisskuldbindingar sjóðsins hækkuðu verulega. Þetta nýja reiknilíkan og slök ávöxtun ársins 2022 leiddu til þess að tryggingafræðileg staða A deildar í árslok 2022 var komin undir lagaleg viðmið, eða neikvæð um 10,8%, og áfallin tryggingafræðileg staða V deildar var á sama tíma neikvæð um 13,8%. Stjórn varð því að bregðast við stöðunni og gera viðeigandi breytingar á samþykktum sjóðsins í samræmi við tillögur tryggingastærðfræðings sjóðsins sem voru þessar:  

1. Aldurstengd réttindi:  

Ávinnsla aldurstengdra réttinda til framtíðar í A og V deild var lækkuð frá 1. febrúar 2023 en þá tóku gildi nýjar réttindatöflur sem taka mið af bæði aldri og fæðingarári. Nýjar töflur um lífaldur verða framvegis notaðar hjá lífeyrissjóðum en hver fæðingarárgangur karla og kvenna fær sérstaka töflu um lífslíkur sem aukast með hækkandi fæðingarárgangi.  

2. Jöfn réttindi: 

Frá 1. janúar 2024 voru framtíðarréttindi í jafnri ávinnslu í A deild lækkuð úr 1,9% niður í 1,8% og breyting varð á viðmiðunaraldri við töku lífeyris en hann var hækkaður úr 65 árum í 67 ár. Enn er hægt að sækja um lífeyri bæði í A og V deild frá 60 ára aldri. 

3. Áunnin réttindi í A og V deild:  

Áunnin réttindi, hvort sem um er að ræða aldurstengd réttindi eða jöfn réttindi, lækkuðu um 10% með flatri lækkun. Lækkun aldurstengdra réttinda er miðuð við 1. febrúar 2023 en lækkun jafnra réttinda er miðuð við 31. desember 2023. Ástæðan fyrir mismunandi viðmiðunardagsetningu lækkunar er að í febrúar 2023 voru réttindatöflur aldurstengdrar ávinnslu uppfærðar í samræmi við tillögur tryggingastærðfræðings og framtíðarávinnsla þar með lækkuð. Ekki þarf að leiðrétta þau réttindi sjóðfélaga sem áunnin eru eftir breytingar á réttindatöflum. 

4. Undanþáguhópur í A deild: 

Ákveðinn hópur sjóðfélaga nýtur bakábyrgðar launagreiðenda sinna, þ.e. sveitarfélaga og stofnana þeirra, og lækka þeirra lífeyrisgreiðslur því ekki. Þetta eru þeir sjóðfélagar sem voru í jafnri ávinnslu og voru orðnir 60 ára og/eða höfðu hafið töku lífeyris þann 1. júní 2017 þegar breytingar voru gerðar á A deild sjóðsins. Launagreiðendur þurfa að bera kostnaðinn sem nemur lækkuninni og verður hann innheimtur hjá þeim mánaðarlega við útgreiðslu lífeyris þessa hóps. Bakábyrgð þessi tekur ekki til framtíðarréttinda en ávinnsla þessa hóps er sambærileg annarra sjóðfélaga í jafnri ávinnslu. 

Breytingar þessar höfðu engin áhrif á þá sem fá lífeyri úr B deild sjóðsins eða úr Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar.  

Upplýsingar um framangreindar breytingar má einnig finna á heimasíðu sjóðsins www.lifbru.is. Hafir þú áhuga á að fá frekari upplýsingar um breytingarnar og áhrif þeirra á þín réttindi eða fá ráðgjöf um lífeyrismál þá er þér velkomið að hafa samband við sjóðinn. Hægt er að bóka samtal í síma, fjarfundakerfi eða á starfstöð sjóðsins á heimasíðu sjóðsins.