Samtakamátturinn sterkasta vopnið

„Ég óska okkur öllum til hamingju með baráttudaginn! Ég vonast eftir að félagsfólk komi á þá viðburði sem fara fram víða um land og fagni liðnum áföngum um leið og við undirbúum þá næstu á leið okkar að bættum starfskjörum og betra starfsumhverfi.“, segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, skrifar:
„Kæru kollegar! Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí rennur upp á morgun, enn eitt árið. Auðvitað hefur merking hans færst til í gegnum tíðina þar sem baráttan fylgir þeim tíðaranda sem ríkir hvert sinn, það er minna um háværar yfirlýsingar um bardagann gegn auðvaldinu og kröfuspjöldin eru um margt mildari en áður.
Það breytir því ekki að dagurinn hefur mikla þýðingu fyrir launafólk. Bæði á þann hátt að horfa til þeirra áfanga sem hafa áunnist og ekki síður til að minna okkur öll á að í raun verðum við alltaf að vera á tánum, tilbúin að bæta kjör okkar og laga starfsumhverfið. Því þar náum við aldrei í endamark í raun þar sem endamarkið hefur tilhneigingu til að færast, og þá verðum við að beita því vopni sem alltaf er sterkast í baráttunni, samtakamættinum.
Þá er ágætt að minna okkur á að enn á ný eru kjarasamningar okkar fólks útrunnir (framhaldsskólinn) eða á leið til þess án þess að alvöru viðræður sé hafnar. Þreifingar eru eiginlega of stórt orð um það sem á milli aðildarfélaga okkar og launagreiðenda hefur farið, þrátt fyrir afskaplega skýr skilaboð okkar um grundvallaratriði allra okkar félagsmanna.
Nefnilega því að nú verði lokið verkefninu um jöfnun launa milli hins almenna markaðar og þess opinbera. Nokkuð sem hefur verið í okkar umgjörð um áratuga skeið og var rammað inn með samkomulagi um jöfnun lífeyrisréttinda sem undirritað var árið 2016. Í því er ein grein sem snýr að því verkefni að jafna grunnlaun markaðanna og það er lykillinn að farsælli lausn kjarasamninga okkar til lengri tíma litið.
Ég óska okkur öllum til hamingju með baráttudaginn! Ég vonast eftir að félagsfólk komi á þá viðburði sem fara fram víða um land og fagni liðnum áföngum um leið og við undirbúum þá næstu á leið okkar að bættum starfskjörum og betra starfsumhverfi.
Magnús Þór Jónsson
formaður KÍ“