Samtakamáttur fleytir okkur langt

Fréttir|10. maí 2024

„Þótt viðmiðið sé almennt skóli fyrir alla þá verðum við að horfast í augu við að kannski er einhverjum börnum betur borgið með annars konar nálgun“, segir Mjöll Matthíasdóttir í viðtali við Skólavörðuna. Mjöll gegnir formennsku í langstærsta aðildarfélagi KÍ, Félagi grunnskólakennara.

Það er í mörg horn að líta hjá formanni Félags grunnskólakennara en félagið er það langfjölmennasta innan KÍ, með rúmlega 5700 félagsmenn. Fundasetur eru tíðar og verkefnin mörg og ekki hlaupið að því að fá formanninn Mjöll Matthíasdóttur í spjall. En það tókst.

Mjöll hefur gegnt formennsku í Félagi grunnskólakennara síðan árið 2022, hún hlaut yfirburðakosningu að vori en tók formlega við embættinu að hausti. Þar með yfirgaf hún gamla vinnustaðinn sinn, Þingeyjarskóla fyrir norðan, og hefur unnið á skrifstofu KÍ æ síðan.

Mjöll er spurð hvaða málefni séu stærst á hennar borði. „Kjaramálin vega þungt í starfinu og fram undan er að gera nýjan kjarasamning fyrir félagið. Kaup og kjör eru ekki á þeim stað sem við sættum okkur við, þótt vissulega megi segja að nokkuð hafi þokast í þeim málum á mínum starfsferli. Við höfum sem samfélag sammælst um að gera ríka menntunarkröfu til kennara og það er gott. Lögin um menntun, hæfni og ráðningu kennara eru ekki ýkja gömul og innleiðingarferlinu er ekki lokið að fullu en þau endurspegla það viðhorf að við viljum gera kröfur til menntakerfisins, við viljum að börnin okkar fái góða menntun,“ segir Mjöll.

Hún segir mikilvægt að efla og stækka kennarastéttina. „Til þess að fá nægilega stóran hóp af vel menntuðum kennurum, hæfu fólki sem getur borið menntakerfið uppi, þá þurfum við að greiða samkeppnishæf laun.“

Einróma um jöfnun launa

Kjarasamningur Félags grunnskólakennara rennur út í lok maí. Það sama á við um Skólastjórafélagið, bæði leikskólafélögin, FL og FSL, og Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Þetta eru félögin sem semja við Samband íslenskra sveitarfélaga.
„Við erum löngu farin að undirbúa komandi kjaraviðræður. Það er spennandi að nú hafa aðildarfélög Kennarasambandsins ákveðið að ganga saman til viðræðna við sína viðsemjendur. Ég bind vonir við að þetta samstarf okkar verði farsælt og skili félagsmönnum árangri,“ segir Mjöll.

Mikið hefur verð talað um jöfnun launa milli marka og er þar vísað til samkomulags stéttarfélaga opinberra starfsmanna og opinberra launagreiðenda um breytingar á skipan lífeyrismála. Svokölluð sjöunda grein samkomulagsins er óafgreidd en þar kveður á um jöfnun launa milli almenna og opinbera markaðarins.

Samningur í höfn. Mjöll Matthíasdóttir og Bjarni Ómar Haraldsson, frá Sambandinu, takast í hendur að lokinni undirskrift kjarasamnings í maí í fyrra.


Mjöll segir að þrátt fyrir starfshópa og nefndir hafi lítið þokast og enn sé langt til lands. „Aðilar máls hafa ekki einu sinni komið sér almennilega saman um hvaða viðmið skulu vera ráðandi í samanburðinum og hvernig staðið skuli að greiningu á launamun. Ég vil samt alltaf trúa því að hægt sé að þoka málum áfram með samtali og þetta ákveðna samtal þarf að komast almennilega í gang.“

Tímarammi áfangasamkomulags sem var samþykkt í mars í fyrra gerði ráð fyrir að tillögur um aðferðafræði og viðmið myndu liggja fyrir um miðjan janúar. „Stjórn KÍ sendi erindi vegna þessa strax í janúar en því miður erum við enn á sama stað. Það er einóma álit stjórnar KÍ að verkefnið um jöfnun launa verði lykilatriði í komandi kjarasamningum, ekki verði lengur hægt að slá málinu á frest. Við stöndum fast á því að staða okkar sem háskólamenntaðra sérfræðinga sé óumdeild og þess vegna löngu tímabært að launakjör okkar séu í samræmi við sambærilegar starfstéttir á almennum vinnumarkaði,“ segir Mjöll.

Aðbúnaður gæti verið betri

Talið berst að starfi grunnskólanna en Mjöll á að baki um 30 ára feril sem kennari á öllum stigum grunnskólans. Hún segir öflugt starf unnið í grunnskólum landsins á hverjum degi, kennarar sinni starfi sínu af fagmennsku og vilji gera vel.

„Hins vegar er ýmislegt sem þarf að gera betur þegar kemur að aðbúnaði í kringum menntakerfið. Þar má nefna mikilvægi þess að kennarar geti þróað sig í starfi en að mínu mati hefur framþróun í endurmenntun og starfsþróun ekki verið nægileg til þessa. Sama má segja um námsgagnagerð en þar stöndum við höllum fæti í samanburði við frændþjóðirnar og það hefur sýnt sig að við notum minna fjármagn til þessara hluta en hin Norðurlöndin. Vissulega eru áskoranir í þessu enda búum við á litlu málsvæði og framleiðsla námsefnis er kostnaðarsöm. En þetta er samt svo ótrúlega mikilvægt, við verðum að búa þannig um hnúta að kennararnir okkar hafi nauðsynleg verkfæri að vinna með,“ segir Mjöll.

Endurskoðun aðalnámskrár stendur yfir og segir Mjöll vonir bundnar við að breytingar þar verði til góðs og ekki síður að innleiðing muni ganga vel.

„Námskráin sem við vinnum eftir í dag kom fram í nokkrum bútum á árunum 2011-2013. Innleiðing hennar hefur að vissu leyti fengið falleinkunn, það hefur skort fjármagn og nauðsynlega verkferla til að festa ákvæði námskrárinnar í sessi,“ segir Mjöll og bætir við að brýnt sé að menntayfirvöld sem nú standa að breytingaferlinu vandi vel til verka þegar kemur að innleiðingu.

Mjöll, ásamt félögum í KÍ, gengur fylktu liði niður Skólavörðustíg á baráttudegi verkalýðsins í fyrra. 

Umfangið vex og vex

Kennarasambandið efndi til ráðstefnunnar Skóli nútíðar – vegvísir til framtíðar á dögunum. Ráðstefnan var viðamikil, fór fram í Hörpu og stóð í heilan dag. Umræðuefni ráðstefnunnar var byggt á niðurstöðum viðhorfs- og þjónustukönnunar sem KÍ, í samstarfi við Félagsvísindastofnun, lagði fyrir félagsfólk KÍ í febrúar. Spurt var um þá þætti sem kunna að valda álagi, viðhorf til starfsþróunar, kjaramála og hvernig bæta megi þjónustu KÍ.

Mjöll segir niðurstöðurnar um margt áhugaverðar og þá sé þátttakan í könnuninni fagnaðarefni, en rétt tæplega 50 prósent félagsfólks tóku þátt.

„Þessi könnun er því vel marktæk og nú bíður okkar það verkefni næstu mánuði að rýna vel í niðurstöðurnar og finna fleti þar sem við getum haft áhrif til góðs,“ segir Mjöll.

Af mörgu er að taka þegar kemur að könnuninni en Mjöll er spurð út í álagsþætti í starfi kennara. „Við sjáum svart á hvítu að kennarar telja umfang starfsins hafa aukist. Kennarastarfið hefur breyst gríðarlega á mínum þrjátíu ára kennsluferli; þetta er langt í frá sama starfið og þegar ég steig mín fyrstu skref í kennslustofunni.“

Umfang kennarastarfsins er meira en áður og jafnvel mætti halda því fram að það hafi þanist út. Mjöll tekur undir þetta. „Já, verkefnin eru mörg og hefur fjölgað. Skriffinnska af ýmsu tagi, skýrslugerð, upplýsingagjöf, samskipti við foreldra og forráðamenn eru dæmi um atriði sem vega þungt í starfi margra kennara. Það þarf að skrásetja í alls konar kerfi og form og því getur upplifun margra kennara verið sú að kennslan og undirbúningur hennar sé hálfgerð afgangssstærð. Það getur aldrei verið gott og er líklega meginástæða þess að kennarar upplifa mikið álag í starfi.“

Þurfum gjörbreytta nálgun

Við höldum áfram að horfa aðeins um öxl og talið berst að breytingum á skólakerfinu síðustu áratugina. „Skólakerfi er alltaf í þróun og við höfum séð miklar breytingar ef horft er aftur. Við tókum til dæmis ákvörðun um að hafa skóla fyrir alla – sem felur í sér að hætt var að aðgreina nemendur og skipa þeim í ólíka hópa. Önnur breyting sem vegur þungt er hve nemendum af erlendum uppruna hefur fjölgað hratt á skömmum tíma. Nú er fimmti hver nemandi í grunnskóla með annað tungumál en íslensku að móðurmáli. Þetta hlutfall er breytilegt eftir landshlutum og sveitarfélögum en dæmi eru um að hlutfallið sé mun hærra í sumum skólum, allt upp í 80 til 90 prósent nemenda. Þessi breytta mynd kallar á gjörbreytta nálgun í kennslu,“ segir Mjöll.

Útgáfu námsefnis ber aftur á góma en Mjöll segir námsgögn fyrir erlendu börnin af skornum skammti. Það sé verkefni sem þurfi að leysa. „Þetta snýst um peninga og styrk námsefnisútgáfu. Þar þarf að gera mikið átak. Við vitum að kennarar úti um landið bjarga sér, því hvað gerir kennari ef hann hefur ekki námsefni? Hann býr það til og kennarar hjálpast að. Það er hins vegar ekki ásættanlegt, hið opinbera þarf að koma hér inn með öflugum hætti.“

Hópastærðir eru annar þáttur sem nefndur er rækilega í könnun KÍ. „Hópur og hópur er ekki alltaf það sama því við erum alltaf að fást við einstaklinga. Einstaklingsmiðað nám hefur orðið æ meira ríkjandi og ég tel að kennarar séu að gera mjög vel er kemur að því að sinna nemendum með ólíkar þarfir. Við viljum hafa hlutina þannig að reynt sé að koma til móts við hvern og einn nemanda þar sem hann er staddur,“ segir Mjöll.

Með þessari nálgun í kennslu hefur þurft að auka mjög stuðning í grunnskólum, en fram kemur í niðurstöðum könnunarinnar að 44 prósent grunnskólakennara telja að það vanti meiri stuðning inni í bekk.

„Það má velta fyrir sér hvort sá aukni mannafli sem sveitarfélögin hafa sett inn í skólana sé sú tegund starfsfólks sem mest þörf er á. Þetta er atriði sem við þurfum að rýna í, og huga um leið vel að fagmennskunni. Það þarf fleiri sérfræðinga en kennara og sums staðar gengur það vel upp. Ég hef sjálf haft nemendur í bekk sem þurfa mikinn stuðning og má þar nefna talmeinafræðinga, sálfræðinga, námsráðgjafa, þroskaþjálfa og annað fagfólk. Málið er að ef okkur tekst að búa til góða umgjörð þar sem þörfum barna er sinnt þá blómstra nemendur.“


Mjöll Matthíasdóttir á ráðstefnu Kennarasambandsins í Hörpu í apríl.

Að sitja við sama borð

Áskoranir í þessum efnum eru mismunandi eftir skólum og jafnvel landsvæðum. Mjöll segir einnig að sumum þörfum barna verði ekki sinnt í grunnskólanum. „Þótt viðmiðið sé almennt skóli fyrir alla þá verðum við að horfast í augu við að kannski er einhverjum börnum betur borgið með annars konar nálgun. Við megum ekki vera feimin að ræða það,“ segir Mjöll.

Hún veltir því einnig upp að spyrja megi hvort öll börn á Íslandi sitji við sama borð. „Sveitarfélögin sem reka skólana eru misvel í stakk búin til að veita þessa þjónustu og þetta hefur borið á góma í tengslum við innleiðingu farsældarlaga. Það er vilji til þess að koma þessum málum í skýrari farveg með það að leiðarljósi að öllum börnum sé mætt á þeim stað þar sem þau eru. Við þurfum þó alltaf að vera reiðubúin að skoða hvort verið sé að sinna einhverju meðaltali eða hvort tryggt sé að öll börn fái notið sín í skólanum.“

Hreinskiptið samtal

Við víkjum talinu aftur að vinnustaðnum, Kennarasambandinu. Mjöll segir vistina góða í Borgartúninu og þar séu allir að vinna að hagsmunum félagsmanna með einum eða öðrum hætti. Félag grunnskólakennara er, sem fyrr segir, stærsta félagið innan KÍ, með 5517 félagsmenn þegar síðast var talið.

„Þetta er fjölmennt félag og verkefnin því margvísleg. Grunnskólakennarar þurfa að vera duglegir að láta rödd sína heyrast og við sjáum það til dæmis í þeim öfluga hópi sem gegnir störfum trúnaðarmanna hjá okkur. Svæðadeildirnar úti um landið, tíu talsins, gegna líka mikilvægu hlutverki. Mörg félaganna halda enn haustþing og fyrir mig sem formann hefur verið afar ánægjulegt að sækja þingin og kynnast öllu því faglega og góða starfi sem verið er að vinna,“ segir Mjöll.

Fyrirkomulagið er þannig hjá FG að formaður og varaformaður eru í fullu starfi á skrifstofu KÍ. „Við leggjum okkur fram að styðja og aðstoða félagsfólk eftir þörfum og það er mikið leitað til félagsins með allra handa mál. Félagið er að taka vaxtakipp þessa dagana því við höfum ákveðið að ráða tvo þjónustufulltrúa til starfa. Við teljum þetta mikilvægan þátt í að bæta enn þjónustuna við okkar félagsfólk,“ segir Mjöll.

Hún segir stjórn Kennarasambandsins vinna vel saman og vera samstíga í flestum málum. „Það er kostur að við getum átt hreinskiptin samtöl okkar á milli. Auðvitað erum við ekki alltaf sammála en við ræðum þá bara málin betur. Kennarasambandið er stórt, félagar nálgast 12 þúsund en mín skoðun er sú að í krafti fjöldans og samtakamáttar þá getum við náð enn lengra í okkar baráttumálum. Það er svo miklu fleira sem sameinar okkur en aðskilur, þrátt fyrir að við störfum á ólíkum skólastigum og skólagerðum.“

Starfsemi í þágu FG er þó alltaf stærsti þátturinn í starfi Mjallar en hún vinnur líka mikið á vettvangi Kennarasambandsins enda eru hagsmunir þess ekki síður mikilvægir.

„Meðal verkefna sem við sameinumst um undir merkjum KÍ er að taka þátt í samtali við menntayfirvöld og hagaðila í skólakerfinu, svo sem nýja Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Þá erum við oft kölluð til ráðgjafar varðandi breytingar og áform sem eru uppi og ætlað er að bæta skólakerfið. Við höfum þá tækifæri til að koma sjónarmiðum grunnskólakennara að þeim málum. Dropinn holar nefnilega steininn og því er mikilvægt að við eigum rödd við borðið, séum þátttakendur í stefnumótun og umræðum og getum þannig haft áhrif.“