Samstöðuganga á Akureyri
Fréttir|11. nóvember 2024

Kennarar á Akureyri hvetja alla til að koma í samstöðugöngu í dag, 12. nóvember, klukkan 16.30.
Gengið verður frá planinu við Rósenborg klukkan 16.45 og niður á Ráðhústorg. Hópurinn safnast saman á planinu klukkan 16.30.
Til máls taka Daníel Freyr Jónsson, kennari í VMA, og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, kennari í Lundarskóla og Elísabet Þórunn Öldu Jónsdóttir, kennari í Naustatjörn.
Lundarskóli er meðal níu skóla þar sem verkfallsaðgerðir standa nú yfir.
Fjölmennum í samstöðugöngu!