Samstöðufundir á þremur stöðum úti á landi í kvöld

Kennarar í Skagafirði, á Akureyri og Egilsstöðum ætla að koma saman í kvöld. Jafnframt verður fundað á Austurvelli. Með þessu vill félagsfólk KÍ þrýsta á stjórnvöld að gengið verði frá kjarasamningum kennara.
Félagsfólk Kennarasambandsins ætlar að sýna samstöðu í yfirstandandi kjaradeilu með því að koma saman til funda í kvöld.
Þegar hefur verið greint frá samstöðufundi sem haldinn verður á Austurvelli í kvöld, á sama tíma og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra heldur sína fyrstu stefnuræðu
Kennarar í Skagafirði, á Akureyri og Egilsstöðum ætla að gera slíkt hið sama. Huganlega bætast fleiri fundir við þegar líður á daginn.
Akureyri – Ráðhústorg
- Félagsfólk KÍ á Norðurlandi eystra er hvatt til að mæta á samstöðufund sem fer fram á Ráðhústorginu og hefst klukkan 19.
- Safnast verður saman við Rósenberg og gengið fylktu liði niður á Ráðhústorg. Göngufólk er hvatt til að mæta með ljós.
Egilsstaðir – Tjarnargarðurinn
- Samstöðufundur hefst klukkan 19 í Tjarnargarðinum, Egilsstöðum.
- Félagsfólk KÍ er hvatt til að fjölmenna og taka mér sér ljósmeti, kyndla og vasaljós.
Skagafjörður – Sauðárkrókur
- Fundurinn fer fram á Kirkjutorgi og hefst klukkan 19.
- Félagsfólk KÍ er hvatt til að fjölmenna.
Samstöðufundur á Austurvelli
Safnast verður saman á horni Bankastrætis og Lækjargötu klukkan 19. Gengið verður á Austurvöll og staðið þar meðan forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína í þinghúsinu.
Kyndlar, vasaljós, ljósabönd og hvað eina sem lýsir upp næturhimininn er vel þegið.