Samstarfsverkefni um vinnuumhverfi starfsfólks í leik- og grunnskólum

Óskað er eftir leik- og grunnskólum til þátttöku í samstarfsverkefni um vinnuumhverfi. Markmiðið er að meta áhættuþætti í vinnuumhverfi starfsfólks leik- og grunnskóla og stuðla að heilbrigðu vinnuumhverfi og góðri heilsu starfsfólks. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2023.
Vinnueftirlitið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands eiga í samstarfi um verkefnið. Með verkefninu er ætlunin að stjórnendur og starfsfólk öðlist dýpri skilning á áhrifum áhættuþátta á vinnustaðamenningu og vinnuumhverfi, rýni áhættuþætti síns vinnuumhverfis og fái í kjölfarið stuðning til að efla heilbrigt og jákvætt vinnuumhverfi.
Verkefnið gengur út á að stjórnendur og starfsfólk þátttökuskólanna rýni áhættuþætti í vinnuumhverfi sínu. Til að mynda skipulag og upplifun starfsfólks á samskiptum á vinnustaðnum, bæði innan hans og við utanaðkomandi aðila sem eiga samskipti við hlutaðeigandi skóla. Veittur yrði stuðningur til stjórnenda og starfsfólks innan verkefnisins til að finna leiðir til að stuðla að góðri heilsu, vellíðan og öryggi starfsfólks í leik- og grunnskólum þar sem áherslan er á að leita leiða til að efla heilbrigða vinnustaðamenningu.
- Hér er hægt að lesa meira um verkefnið.
Um verkefnið
Niðurstöður könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um stöðu fólks á íslenskum vinnumarkaði og ástæður brotthvarfs af vinnumarkaði, frá október 2022, sem gerð var fyrir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og Vinnueftirlitið, leiðir meðal annars í ljós að sérfræðingar í kennslu og uppeldisfræði upplifa sig meira andlega úrvinda eftir vinnudaginn en aðrar starfsstéttir og finnst þeir glíma við tilfinningalega erfiðar aðstæður í vinnunni, segir á vef Vinnueftirlitsins.
Verkefninu er ætlað að beina athyglinni að sálfélagslegum áhættuþáttum í vinnuumhverfi innan leik- og grunnskóla, þar á meðal að styrkja áhrif heilbrigðrar vinnustaðamenningar, skipulags og samskipta til að draga úr sálfélagslegu álagi starfsfólks. Minni áhersla er á aðra áhættuþætti sem snúa til dæmis að loftgæðum og hljóðvist.
Leitað er eftir þátttöku fjögurra leik- og/eða grunnskóla og eru áhugasamir skólastjórnendur hvattir til að sækja um í samvinnu við sveitarfélagið sitt. Skilyrði fyrir þátttöku er að almenn stefna um leik- og grunnskólahald liggi fyrir í sveitarfélaginu þar sem skólinn starfar.
Áherslur verkefnisins eru þríþættar:
- Að veita stjórnendum og starfsfólki stuðning og fræðslu til að efla góða heilsu, vellíðan og öryggi starfsfólks.
- Að hvetja vinnustaði til að rýna vinnustaðamenningu sína, þar á meðal ríkjandi gildi og viðhorf innan vinnustaðarins.
- Að veita vinnustöðum stuðning viðað skapa heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á virkni, jákvæð viðhorf og vellíðan í starfi þar sem stefnt er að þátttöku starfsfólk
Leiðir að lausnum
Innan verkefnisins verður unnið með þátttakendum að því að sníða verkefnið að hverjum þátttökuskóla ásamt því að setja upp aðgerðaáætlun með ákveðnum atriðum sem unnið verður með líkt og:
- stuðning við stjórnendur og starfsfólk
- traust
- tilgang
- áhrif á eigin störf
- frelsi til athafna
- trú á eigin getu
- samskipti á vinnustaðnum
- vinnustaðamenningu
- valdeflingu
Verkefnið byggist á stað- og fjarfundum með leiðbeinanda, með áherslu á fræðslu, samtal, jafningjastuðning og sjálfsvinnu.
Í upphafi verkefnisins verður framkvæmd forkönnun meðal starfsfólks þátttökuskóla með það að markmiði að kanna starfsánægju og viðhorf til vinnustaðamenningar í hverjum skóla fyrir sig. Við lok verkefnisins verður könnunin endurtekin til þess að sjá hvort breytingar hafi átt sér stað á starfsánægju og viðhorfi eftir innleiðingu aðgerða verkefnisins.
Upplýsingar um umsóknarferlið
Nánari upplýsingar gefur: Guðrún Birna Jörgensen, leiðtogi verkefnastofu Vinnueftirlitsins, í síma: 550-4600 eða í tölvupósti: gudrun.jorgensen@ver.is
Áhugasamir sendi umsóknir á netfang Vinnueftirlitsins: vinnueftirlit@ver.is
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2023.