Samstarfssamningur við Háskólann á Akureyri
Fréttir|27. nóvember 2015
Kennarasamband Íslands og kennaradeild Háskólans á Akureyri skrifuðu fyrr í vikunni undir samstarfssamning um málefni kennaramenntunar og fagleg málefni sem tengjast störfum félagsmanna KÍ í skólum. Aðalheiður Steingrímsdóttir varaformaður KÍ og Bragi Guðmundsson formaður kennaradeildar HA skrifuðu undir samþykktina fyrir hönd sinna stofnana.
Sett verður á fót samstarfsnefnd sem hefur þau markmið:
- Að efla kennaramenntun og kennarastarf.
- Að taka þátt í faglegri umræðu um kennaramenntun og kennarastarf á hverjum tíma, ræða meðal annars um breytingar á lögum og reglugerðum og skyld mál, fjalla um skipulag og úrbætur og eiga frumkvæði að umræðu um nýjungar.
- Að tryggja gagnkvæmt flæði upplýsinga milli KÍ og HA og sinna fræðslu- og kynningarverkefnum er þessu tengjast.
Samstarfsnefndin leggur sérstaka áherslu á að auka veg og virðingu kennaramenntunar og kennarastarfsins.