Samstarf við Lúðrasveit verkalýðsins endurnýjað

Kennarasamband Íslands hefur endurnýjað samning við Lúðrasveit verkalýðsins. Lúðrasveitin er ómissandi í hátíðarhöldum 1. maí og þá hefur hún leikið sérstaklega á ýmsum viðburðum KÍ í gegnum tíðina.
Samstarf Kennarasambandsins við Lúðrasveit verkalýðsins heldur áfram. Samningur þess efnis var undirritaður af formönnum beggja aðila á skrifstofu KÍ á dögunum.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, segir samninginn vera gleðiefni. Lúðrasveitin þykir enda ómissandi á dögum eins og 1. maí en þar setur tónlistarflutningur hennar einstakan svip á hátíðarhöldin.
„Samstarf við sveitina hefur verið farsælt alla tíð og mikil ánægja í því fólgin að endurnýja samstarfssamninginn. Lúðrasveit verkalýðsins er flaggskip íslenskra lúðrasveita og samofin sögu verkalýðsfélaganna og baráttu fyrir betri kjörum. Þá hefur sveitin glatt félagsmenn KÍ með tónlistarflutningi á ýmsum viðburðum sambandsins í gegnum tíðina. Nú hefur verið staðfest að svo verður áfram og er það mikið gleðiefni," segir Magnús Þór.

Lúðrasveit verkalýðsins heimsótti skrifstofu Kennarasambandsins 1. maí síðastliðinn. Afar góð stemning fylgdi sveitinni og var henni vel tekið.
Sjötug sveit
Lúðrasveit verkalýðsins var stofnuð 1953 og fagnar því sjötugsafmæli á þessu ári. Helsta markmið með stofnun sveitarinnar var að búa til vettvang þar sem almenningur gæti komið og tekið þátt í tónlistarflutningi eða hlýtt á tónlist, án þess að það kostaði neitt. Sveitin heldur árlega tónleika þar sem aðgangur er ókeypis.
Á vefsíðu sveitarinnar segir þetta: „Lúðrasveitin hefur alla tíð átt gott samstarf við verkalýðshreyfinguna, bæði fulltrúaráð hennar, heildarsamtökin og ekki síst við einstök verkalýðsfélög. Að sama skapi er með sanni hægt að segja að ekki stæði starfsemi sveitarinnar í jafn miklum blóma og raun ber vitni nema fyrir einstakan stuðning og velvilja verkalýðshreyfingarinnar. Sveitin hefur ávallt verið tilbúin að spila við öll möguleg tækifæri hjá verkalýðsfélögunum, hvort heldur er á kaffisamkomum 1. maí ár hvert, í kröfugöngum eða jafnvel fyrir utan Karphúsið til að hraða samningaviðræðum!"

Hátíðleg stemning var við setningu 8. Þings KÍ síðla á síðasta ári. Lúðrasveit verkalýðsins spilaði fjörug lög þegar þingfulltrúa bar að garði á fyrsta degi þings.